Fotbolti.net
31.10.13 - 19:15
Brynjar Ingi Erluson

Ragnar Leósson í Fjölni (Staðfest)

Ragnar Leósson í leik með ÍBV

Ragnar Leósson í leik með ÍBV

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Pepsi-deildarlið Fjölnis heldur áfram að styrkja sig, en félagið hefur fengið Ragnar Leósson frá ÍBV, en þetta kemur frá á ÍBVSport.is.
Ragnar, sem er 22 ára gamall, kom til ÍBV frá ÍA í lok árs 2011. Hann lék samtals 18 leiki fyrir ÍBV á tíma sínum þar.

Hann var lánaður frá ÍBV seinni hluta tímabilsins í Fjölni sem lék þá í fyrstu deildinni, en hann var þeim afar mikilvægur og gerði sjö mörk, sem hjálpaði liðinu að komast upp í deild þeirra bestu.

Hann er nú kominn aftur í Fjölni, en þó ekki á láni og er hann annar leikmaðurinn í dag sem félagið fær til sín.

Gunnar Már Guðmundsson gekk einnig til liðs við Fjölni, en hann fór frá félagnu árið 2009 í FH. Þá lék hann einnig með Þór og síðan ÍBV áður en hann ákvað að koma aftur heim í Grafarvoginn.

Heimild: ÍBVSport.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.