Fotbolti.net
31.10.15 - 07:00
Elvar Geir Magnússon

Hákon Ingi í HK (Staðfest)

Hákon Ingi Jónsson.

Hákon Ingi Jónsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Sóknarmaðurinn tvítugi Há­kon Ingi Jóns­son hefur samið við 1. deildarlið HK til tveggja ára en þetta kom fram á mbl.is í gær.
Há­kon hef­ur leikið með Fylki í Pepsi-deildinni síðustu þrjú ár.

Hann hefur leikið 31 leik í efstu deild og bikar með Fylki og skorað eitt mark.

HK hafnaði í áttunda sæti 1. deildarinnar í sumar en Reynir Leósson tók við þjálfun liðsins eftir tímabilið. Fyrr í vikunni var tilkynnt að Ingimar Elí Hlynsson væri genginn í raðir Kópavogsliðsins frá ÍA.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.