31.10.15 - 12:20
Ívan Guðjón Baldursson
Víðir Þorvarðarson búinn að semja við Fylki (Staðfest)

Víðir, Hermann og Ásgeir.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Víðir, Hermann og Ásgeir.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Við greindum frá því í gær að Víðir Þorvarðarson væri hættur hjá ÍBV og sagðist leikmaðurinn vilja nýtt upphaf í höfuðborginni.
Víðir er 23 ára gamall uppalinn Eyjamaður og hefur gert 20 mörk í 97 leikjum fyrir félagið.
Víðir er 23 ára gamall uppalinn Eyjamaður og hefur gert 20 mörk í 97 leikjum fyrir félagið.
Orðrómar hafa verið á kreiki um að Víðir ætli að ganga til liðs við Fylki, en Víðir vildi ekki staðfesta það í samtali við Fótbolta.net.
Nú greinir 433.is frá því að Víðir sé búinn að skrifa undir samning við Fylki.
Víðir og Hermann Hreiðarsson, þjálfari Fylkis, eiga í góðu sambandi eftir að hafa verið báðir hjá ÍBV.
Þá skrifaði Ásgeir Örn Arnþórsson einnig undir nýjan samning við Fylki í dag.

Heimild: 433