31.10.21 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Everton ræður Vasseur (Staðfest) - Cecilía á leið til félagsins

Jean-Luc Vasseur.

Mynd: Getty Images

Jean-Luc Vasseur.

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið Everton hefur ráðið nýjan þjálfara fyrir kvennalið sitt. Frakkinn Jean-Luc Vasseur skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning við félagið.
Willie Kirk var rekinn frá Everton fyrir um tveimur vikum síðan eftir erfiða byrjun á tímabilinu.
Vasseur er fyrrum þjálfari franska stórliðsins Lyon. Hann gerði Lyon að Evrópumeisturum 2020 með Söru Björk Gunnarsdóttur, landsliðsfyrirliða Íslands, í liðinu.
Everton er stórhuga með þessari ráðningu þar sem Vasseur er stórt nafn í þjálfarabransanum.
Landsliðsmarkvörðurinn efnilegi Cecilía Rán Rúnarsdóttir fer til Everton þegar tímabilið í Svíþjóð klárast. Hún er núna hjá Örebro. Cecilía spilaði sinn fyrsta keppnisleik með Íslandi gegn Kýpur á dögunum.