31.10.24 - 22:29
Brynjar Ingi Erluson
Sigur í fyrsta byrjunarliðsleik Kolbeins

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsmaðurinn Kolbeinn Birgir Finnsson byrjaði sinn fyrsta leik með hollenska úrvalsdeildarliðinu Utrecht er það vann D-deildarlið Lisse, 2-1, í bikarnum í kvöld.
Kolbeinn samdi við Utrecht í ágúst eftir glimrandi frammistöðu hans með Lyngby í Danmörku.
Hann hafði aðeins komið inn af bekknum í tveimur leikjum hjá Utrecht á tímabilinu áður en hann fékk tækifærið í byrjunarliðinu í kvöld.
Utrecht skoraði mark snemma í báðum hálfleikum og kom sér þannig í þægilega stöðu en Lisse náði í sárabótarmark seint í uppbótartíma.
Sigurinn þýðir að Utrecht er komið áfram í 32-liða úrslit bikarsins.