Fotbolti.net
31.12.13 - 14:19
Hafliði Breiðfjörð

Hallbera gengur í raðir Vals 15. júlí (Staðfest)

Hallbera gengur til liðs við Val að nýju.

Hallbera gengur til liðs við Val að nýju.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Kvennaboltinn
Landsliðskonan Hallbera Guðný Gísladóttir mun ganga til liðs við Val þegar félagaskiptaglugginn opnar á miðju sumri en þetta staðfesti félagið í yfirlýsingu í dag.

Hallbera er nýgengin til liðs við ítalska félagið ASD Torres frá Piteå í Svíþjóð og spilar með ítalska liðinu út maí næstkomandi. Þá verður félagaskiptaglugginn hér á landi lokaður og opnar aftur 15. júlí er Hallbera gengur til liðs við Val.
Hallbera á að baki 120 leiki með Val í efstu deild og bikarkeppni og 46 leiki með A-landsliði kvenna.

,,Ljóst að hún mun styrkja lið Vals gríðarlega í þeirri barráttu að endurheimta Íslandsmeistaratitilinn tilbaka á Hlíðarenda,\" sagði í tilkynningu Vals í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.