Fotbolti.net
31.12.13 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson

Maduro til PAOK (Staðfest)

Maduro til PAOK (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Hollenski varnartengiliðurinn Hedwiges Maduro er á leið til gríska stórliðsins PAOK Salonika á þriggja ára samning.

Maduro hefur ekki fengið mörg tækifæri hjá Sevilla á Spáni frá komu sinni þangað frá Valencia fyrir einu og hálfu ári.
Maduro kom frítt til Sevilla á sínum tíma og var byrjunarliðsmaður allt þar til Unai Emery tók við.

Huub Stevens, samlandi Maduro og þjálfari PAOK, sannfærði leikmanninn um að koma til Grikklands.

Maduro á aðeins eftir að enda samning sinn við Sevilla, sem gæti tekið nokkra daga eða vikur af viðræðum, og getur að því loknu flutt til Grikklands.

Heimild: ISP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.