Fotbolti.net
31.12.15 - 16:30
Fótbolti.net

Mest lesnu fréttir ársins á Fótbolta.net

Viðar Guðjónsson labbar í burtu eftir að Pétur Pétursson sagði honum að drulla sér í burtu.

Viðar Guðjónsson labbar í burtu eftir að Pétur Pétursson sagði honum að drulla sér í burtu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ársins 2015 verður lengi í minnum haft hjá íslenskum knattspyrnuáhugamönnum eftir að Ísland tryggði sér sæti á EM í Frakklandi næsta sumar. FH og Breiðablik unnu Pepsi-deild karla og kvenna en Valur og Stjarnan urðu bikarmeistarar. Chelsea varð enskur meistari og Barcelona sigraði Meistaradeildina.

Fótbolti.net hefur á árinu birt um 20 þúsund fréttir. Við höldum til haga hjá okkur upplýsingum um þær fréttir sem mest eru skoðaðar á árinu og í tilefni af því að árinu er að ljúka birtum við hér að neðan lista yfir þær 100 fréttir sem voru mest lesnar á árinu.
  1. „Drullaðu þér í burtu\'\' (þri 18. ágú 21:01)
  2. Athyglisvert atvik varð um miðjan síðari hálfleik í viðureign Fram og Selfoss í 1. deild karla í ágúst þegar Pétur Pétursson þjálfari Fram þurfti að vísa stjórnarmanni frá varamannabekknum. Staðan var 0-2 fyrir Selfoss þegar Viðar Guðjónsson stjórnarmaður í Fram strunsaði að varamannabekknum, hallaði sér upp að Pétri og hvíslaði einhver orð í eyra hans. Pétur brást reiður við, ýtti hressilega við honum og sagði: „Drullaðu þér í burtu.\" Viðar neitaði að hafa verið að gefa Pétri skipanir en hann ákvað að stíga tímabundið til hliðar frá störfum knattspyrnudeildar

  3. Mario Balotelli: Allar stelpur frá Íslandi eru fallegar (mán 05. jan 22:35)
  4. Mario Balotelli fékk lítið að spila með Liverpool á síðasta tímabili en hann var duglegri að spjalla við íslenskar stelpur á Instagram. „Allar stelpurnar þaðan eru svo fallegar,\" sagði Balotelli í spjalli við stelpu að nafni María Sif eins og kom fram í þessari frétt sem vakti mikla athygli. Þar má sjá spjall Ítalans við Maríu á Instagram.

  5. Eva sögð hafa sofið hjá leikmanni Chelsea (sun 16. ágú 11:15)
  6. Sjúkraþjálfarinn Eva Carneiro var mikið í sviðsljósinu í ágúst eftir að Jose Mourinho ákvað að reka hana af bekknum hjá Chelsea eftir atvik í fyrstu umferðinni gegn Swansea. Fyrrum kærasti Evu steig fram á sama tíma og sagði að Eva hefði á einhverjum tímapunkti sofið hjá leikmanni Chelsea.

  7. Löggan henti landsliðinu út (mán 07. sep 02:14)
  8. Sunnudagskvöldið 6. september 2015 er það eftirminnilegasta í íslenskri knattspyrnusögu. Troðfullt var á Laugardalsvelli þegar Ísland gerði markalaust jafntefli við Kasakstan og tryggði farseðilinn á EM. Mikil fagnaðarlæti voru í kjölfarið í miðborg Reykjavíkur. Margir landsliðsmenn og stuðningsmenn fögnuðu vel og innilega á skemmtistaðnum B5 en það endaði á því að lögreglan kom og rak mannskapinn út. Ástæðan var sú að einungis mátti vera opið til klukkan 1, engar undanþágur voru veittar þrátt fyrir frábæran árangur landsliðsins.

  9. Foreldrar í feluleik (fim 21. maí 22:45)
  10. Magnús Örn Helgason, yfirþjálfari yngri flokka hjá Gróttu, ritaði pistil sem vakti gífurlega mikla athygli. Magnús benti á að ekki nógu margir foreldrar styðja stúlkur sínar í fótboltanum. „Ég fullyrði að foreldrar almennt bera ekki nógu mikla virðingu fyrir knattspyrnuiðkun dætra sinna,\" sagði Magnús meðal annars í pistlinum sem var mikið deilt á Facebook.

  11. Gylfi: Símtalið í Rodgers ekki það skemmtilegasta (fim 01. okt 11:45)
  12. Gylfi Þór Sigurðsson hafnaði Liverpool árið 2012 til að ganga í raðir Tottenham. Í bókinni „Atvinnumaðurinn Gylfi Sigurðsson\" talar Gylfi um það þegar hann tilkynnti Brendan Rodgers, þáverandi stjóra Liverpool, ákvörðun sína. „Eftir þessa ákvörðun ákvað ég að hreinsa loftið milli mín og Brendan Rodgers svo ég tók upp tólið og sagði honum stöðu mála. Þetta var ekki skemmtilegasta símtal sem ég hef átt, en svona gerast hlutirnir í fótboltanum,\" sagði Gylfi í bókinni.

  13. Petr Cech: Verðum að hrósa Íslandi (fös 12. jún 21:59)
  14. Petr Cech, markvörður tékkneska landsliðsins, hrósaði íslenska landsliðinu í viðtali við Fótbolta.net eftir sigur Íslands í leik liðanna á Laugardalsvelli í júní. „Við verðum að hrósa Íslandi því þeir spiluðu mjög góðan seinni hálfleik og þeir áttu skilið að minnsta kosti mark,\" sagði Cech meðal annars í viðtalinu.

  15. „Var 100% að ég myndi deyja um nóttina” (mán 21. sep 20:00)
  16. Alexander Kostic, fyrirliði ÍR, greindi opinskátt frá baráttu sinni við ofsakvíða í ítarlegu viðtali við Fótbolta.net. Alexander var frá keppni í fótbolta í marga mánuði vegna kvíðans. „Þegar ég fór að sofa var ég 100% viss um að ég væri að fara að deyja um nóttina. Það væri pottþétt að ég væri að fá hjartaáfall,\" sagði Alexander meðal annars í viðtalinu.

  17. Ítalir æfir á Facebook síðu KSÍ - Líkja Íslandi við ISIS (þri 09. jún 19:08)
  18. Stuðningsmenn ítalska liðsins Pescara sendu fjölmörg skilaboð á KSÍ á Facebook í júní síðastliðnum. Ástæðan var sú að Birkir Bjarnason missti af leik með Pescara í umspili um sæti í Serie A þar sem hann var að undirbúa sig fyrir landsleikinn gegn Tékkum. Ummælin eru mörg hver gróf hjá stuðningsmönnunum en Íslandi var meðal annars líkt við hryðjuverkasamtökin ISIS. Pescara tapaði í umspilinu og spilar ennþá í Serie B.

  19. Myndband: Besta Steven Gerrard grínið á netinu (sun 22. mar 17:00)
  20. Steven Gerrard kom inn á sem varamaður í hálfleik í leik Liverpool og Manchester United í mars. 40 sekúndum síðar var hann farinn af velli með rautt spjald fyrir ljóta tæklingu á Ander Herrera. Fjölmargir aðilar gerðu grín að Gerrard á internetinu sama dag og í þessari frétt mátti sjá brot af því.

  21. „Ég á allavega miklu meiri pening en þú!\" (sun 17. maí 23:55)
  22. Óli Kalli sektar Blika og stelur skónum hans Gulla (fös 29. maí 10:30)
  23. Balotelli skoraði sjálfsmark frá miðju - Öskraði á Flanagan (fim 13. ágú 11:48)
  24. Að fela sig bakvið grímuna (sun 28. jún 13:30)
  25. „Ætla ekki að fokka árunum upp bara til að detta í það” (mið 28. okt 17:00)
  26. Brendan Rodgers rekinn frá Liverpool (Staðfest) (sun 04. okt 17:31)
  27. Twitter - Balotelli reynir við íslenska stelpu (mán 05. jan 16:00)
  28. Jose Mourinho rekinn frá Chelsea (Staðfest) (fim 17. des 14:42)
  29. Ronaldo: Mun borga úr eigin vasa til að kaupa Messi (sun 05. apr 07:00)
  30. The Sun fjallar um kynlífsskandal í herbúðum Man Utd (sun 08. feb 17:00)
  31. Myndband: Ruglað mark Arons - Minnti á Messi (þri 24. feb 21:46)
  32. Carragher hraunar yfir Liverpool: Kórdrengirnir hans Klopp (sun 25. okt 17:31)
  33. Feta íslensku félögin í fótspor Rosenborgar? (mán 27. apr 15:23)
  34. Fimm menn sem gætu tekið við Liverpool af Rodgers (sun 04. okt 18:13)
  35. Myndband: Ótrúlegur sjö mínútna reiðilestur Mourinho (lau 03. okt 19:54)
  36. Lögregla kölluð til vegna brots í leik á Egilsstöðum (lau 19. sep 21:30)
  37. Mynd: Alfreð tæmdi spray dómarans eftir leik (fim 03. sep 21:07)
  38. Vine-myndband: Frábært mark Eiðs Smára í kvöld (þri 10. feb 21:09)
  39. Leikmaður ársins 2015: Mér voru settir úrslitakostir (þri 29. sep 15:20)
  40. Óli Þórðar: Tognar í nára rétt eftir að kærastan fer (sun 12. júl 21:41)
  41. Hjörtur Hjartarson: Kassim Doumbia er svindlari (sun 13. sep 23:07)
  42. Ronaldo strax orðinn pirraður á Benítez (fim 23. júl 10:55)
  43. Ótrúlegt símtal Benzema við fjárkúgara Valbuena (mið 11. nóv 13:09)
  44. Topp tíu - Kynþokkafyllstu leikmenn Pepsi-deildar kvenna (fös 03. júl 12:00)
  45. Myndband: Gylfi með stórkostlegt mark gegn Blackburn (lau 24. jan 13:28)
  46. Ástæður þess að Liverpool gafst upp á Balotelli (fim 27. ágú 11:40)
  47. Pétur Pétursson: Ég er brjálaður, gjörsamlega brjálaður (lau 25. júl 16:44)
  48. Tony Pulis: Ættum ekki að vera með Liverpool í deild (sun 13. des 19:38)
  49. Tíu leikmenn sem voru þrælefnilegir en floppuðu (fim 22. jan 15:05)
  50. Íslendingum spáð sæti í öðrum potti (mán 06. apr 18:53)
  51. Van Gaal drullufúll út í Valdes: Hann verður seldur (mið 15. júl 22:07)
  52. Hvað gerði Steven Gerrard eftir rauða spjaldið? (mið 25. mar 11:57)
  53. Tíu staðreyndir um Man Utd sem gætu komið á óvart (fim 09. apr 11:00)
  54. Sir Alex nefnir fimm stjóra sem voru ofar á blaði en Moyes (þri 22. sep 07:00)
  55. Mourinho: Þeir drukku vatn eins og það væri leikhlé í körfubolta (lau 05. des 20:04)
  56. Formanni FH vísað út af Akranesvelli (mán 10. ágú 21:53)
  57. Twitter logar - Costa og Balotelli fá það óþvegið (þri 27. jan 22:24)
  58. Eiður besti leikmaður í númer 22 í sögu úrvalsdeildarinnar (mán 03. ágú 13:00)
  59. Mourinho að biðja um að vera rekinn (fim 22. okt 09:45)
  60. Eva læknir fær ekki lengur að vera á bekknum hjá Chelsea (þri 11. ágú 14:48)
  61. Topp tíu - Kynþokkafyllstu leikmenn Pepsi-deildar karla (fim 02. júl 12:00)
  62. Dani Alves búinn að semja við Man Utd (fös 05. jún 10:00)
  63. Mourinho: PSG betri í kvöld - David Luiz ætti að fara í bann (mið 11. mar 22:59)
  64. Fótboltinn bjargaði lífi mínu (fös 16. okt 18:15)
  65. Terry um nýjan samning Mourinho: „Hræðilegar fréttir“ (fös 24. júl 20:00)
  66. Mynd: Áhugaverður samanburður á Coutinho og Di Maria (fim 16. apr 22:30)
  67. Topp tíu - Ofhæpaðir enskir leikmenn (þri 10. feb 12:15)
  68. Íslenskur slúðurpakki #1 (mán 28. sep 12:45)
  69. Ballon d\'Or: Twitter logandi út af valinu á David Luiz (mán 12. jan 18:24)
  70. Íslenskur þjálfari veiktist á æfingu og lést (mið 10. jún 18:22)
  71. Stælar í Ödegaard - Neitar að æfa með varaliðinu (mið 08. apr 10:12)
  72. Heimir Guðjóns: Hjörvar veit ekki mikið um þessa íþrótt (mán 22. jún 17:38)
  73. Eina eftirsjáin á ferlinum að hafa hafnað Man Utd (sun 05. júl 12:15)
  74. Verið að aflífa Mourinho á Twitter fyrir nýjustu ummælin (mán 14. des 22:39)
  75. Gillz hraunar yfir þjálfara Nantes - Kolbeinn 6,3% fita (þri 22. des 23:26)
  76. Gluggadagurinn - Twitter-lýsing: Allt það helsta (mán 02. feb 22:03)
  77. Stones hefur flúið heimili sitt (fös 28. ágú 09:00)
  78. Liverpool nálægt því að fá þrjá (þri 30. jún 09:45)
  79. Myndband: Rosaleg dýfa hjá Costa - Mourinho skellihló (mið 04. nóv 21:22)
  80. Ungir leikmenn Leicester urðu félaginu til skammar (sun 31. maí 12:50)
  81. Giggs stýrði æfingu - Van Gaal mætti ekki (sun 27. des 17:56)
  82. Messi hoppaði upp fyrir Margréti Láru (mið 12. ágú 12:40)
  83. Leikmenn FH neita að tala við fjölmiðla (mið 20. maí 21:20)
  84. Klopp tekur við Liverpool í vikunni (mán 05. okt 21:53)
  85. Rodgers kominn með nýtt starf í Katar (Staðfest) (fim 15. okt 19:02)
  86. Klopp: Venjulega tek ég í hendur stjóra - En ekki í dag (mán 14. des 08:30)
  87. Messan ekki á dagskrá í vetur (fim 06. ágú 14:55)
  88. Felldi tár eftir gagnrýni foreldra (sun 19. júl 15:50)
  89. Messi til Manchester City fyrir fáránlega upphæð? (fim 15. jan 09:30)
  90. Ronaldo og Irina Shayk hætt saman (mið 14. jan 12:23)
  91. Sherwood: Þú ert að grínast er það ekki? (lau 25. apr 19:14)
  92. Viðtalið sem stuðningsmenn Liverpool eru brjálaðir yfir (mið 01. apr 19:08)
  93. Egill Gillz: Hélt að þetta væri grautlint eins og Ólafur Finsen (mán 01. jún 10:14)
  94. Persónuleg vandamál Cristiano Ronaldo (mið 09. des 13:00)
  95. Argentínumaður færist nær Man Utd (þri 11. ágú 10:10)
  96. Fjölskylda Marcos Rojo lifir í stöðugum ótta (þri 10. feb 11:46)
  97. Íslenskur slúðurpakki #2 (mán 05. okt 10:00)
  98. Jurgen Klopp tekinn við Liverpool (Staðfest) (fim 08. okt 19:58)
  99. Heiðar Helguson í SR (Staðfest) (fim 07. maí 12:42)
  100. Hver græðir á þessu? (mán 10. ágú 15:45)
  101. Liverpool vill fá Gerrard á láni i janúar (lau 03. jan 09:00)
  102. Gerrard: Balotelli sýndi fyrirliðanum vanvirðingu (fim 19. feb 22:23)
  103. Eiginkona Rio Ferdinand lést í gærkvöldi (lau 02. maí 09:59)
  104. Myndband: Berbatov með ruglað mark fyrir Monaco (lau 07. mar 21:00)
  105. Dó áfengisdauða úti á götu á Tenerife (mán 15. jún 10:37)
  106. Höddi Magg: Leikurinn sem ég yfirgaf Brendan Rodgers (lau 16. maí 18:46)
  107. Yfirlýsing frá Man Utd: Real Madrid klúðraði þessu (þri 01. sep 18:45)
  108. Gary Martin: Búið að vera martröð - Hef ekki hugmynd hvort ég verði áfram (sun 20. sep 18:42)
  109. Drög að styrkleikaflokkum - Hvaða lið verða með Íslandi í riðli? (þri 13. okt 22:18)
  110. Spjótin beinast að Louis van Gaal (fös 11. sep 09:35)
Samskipti Balotelli við íslenska stúlku vöktu mikla athygli.

Samskipti Balotelli við íslenska stúlku vöktu mikla athygli.

Canon

Mynd: Getty Images

Fögnuðurinn var mikill eftir að Ísland tryggði sér sæti á EM.

Fögnuðurinn var mikill eftir að Ísland tryggði sér sæti á EM.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Cech hrósaði íslenska landsliðinu eftir leikinn á Laugardalsvelli.

Cech hrósaði íslenska landsliðinu eftir leikinn á Laugardalsvelli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gerrard fékk rautt eftir 40 sekúndur gegn Manchester United.

Gerrard fékk rautt eftir 40 sekúndur gegn Manchester United.

Canon

Mynd: Getty Images

Viðtal við Þórð Ingason vakti mikla athygli en þar talaði hann á einlægan hátt um líferni sitt undanfarin ár.

Viðtal við Þórð Ingason vakti mikla athygli en þar talaði hann á einlægan hátt um líferni sitt undanfarin ár.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson

Brendan Rodgers var rekinn frá Liverpool.

Brendan Rodgers var rekinn frá Liverpool.

Canon

Mynd: Getty Images

Mourinho var mikið í fréttum....og var síðan líka rekinn.

Mourinho var mikið í fréttum....og var síðan líka rekinn.

Canon

Mynd: Getty Images

Ronaldo kemur við sögu í fjórum fréttum á topp 100.

Ronaldo kemur við sögu í fjórum fréttum á topp 100.

Canon

Mynd:

Félagaskipti Heiðars Helgusonar í SR í 4. deildinni vöktu athygli.

Félagaskipti Heiðars Helgusonar í SR í 4. deildinni vöktu athygli.

Canon

Mynd: Instagram - Haraldur Árni Hróðmarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.