Fotbolti.net
31.12.15 - 08:00
Arnar Geir Halldórsson

Liam Ridgewell til Brighton (Staðfest)

Ridgewell veitir MLS bikarnum viðtöku á dögunum

Ridgewell veitir MLS bikarnum viðtöku á dögunum

Canon

Mynd: Getty Images

Enski varnarmaðurinn Liam Ridgewell mun eyða næstu vikum á láni hjá enska B-deildarliðinu Brighton.
Ridgewell er samningsbundinn nýkrýndum MLS meisturum Portland Timbers en nú er komið frí í bandaríska boltanum.

Þessi 31 árs gamli varnarmaður á fjölmarga leiki að baki í ensku úrvalsdeildinni þar sem hann lék með Aston Villa, Birmingham og WBA.

Hann mun nú hjálpa Brighton liðinu næstu sex vikurnar eða þar til undirbúningstímabilið hefst í Bandaríkjunum en Brighton er í harðri toppbaráttu í B-deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.