31.12.15 - 10:30
Arnar Geir Halldórsson
Pletikosa til Deportivo La Coruna (Staðfest)

Pletikosa á Laugardalsvelli

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Pletikosa á Laugardalsvelli

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spænska úrvalsdeildarfélagið Deportivo La Coruna hefur náð samningum við króatíska markvörðinn Stipe Pletikosa.
Hinn þrautreyndi Pletikosa kemur til liðsins frá rússneska liðinu Rostov en hann á yfir 100 landsleiki að baki fyrir Króatíu.
Þessi 36 ára gamli markvörður hefur leikið í Rússlandi frá árinu 2007 fyrir utan stutta dvöl hjá Tottenham.
Deportivo situr í 6.sæti spænsku úrvalsdeildarinnar að sautján umferðum loknum.
Þessi 36 ára gamli markvörður hefur leikið í Rússlandi frá árinu 2007 fyrir utan stutta dvöl hjá Tottenham.
Deportivo situr í 6.sæti spænsku úrvalsdeildarinnar að sautján umferðum loknum.
