Fotbolti.net
31.12.15 - 06:00
Arnar Geir Halldórsson

Thelma Björk í Val (Staðfest)

Thelma Björk Einarsdóttir

Thelma Björk Einarsdóttir

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Kvennaboltinn
Thelma Björk Einarsdóttir er gengin til liðs við Pepsi deildarlið Vals en hún kemur til félagsins frá Selfossi.
Thelma þekkir vel til á Hlíðarenda en þar ólst hún upp og hóf einnig sinn meistaraflokksferil áður en hún hélt til Selfoss fyrir tveim árum síðan.

Hún er 25 ára gömul og á 9 A-landsleiki að baki fyrir Íslands hönd en Thelma leikur alla jafnan í stöðu vinstri bakvarðar.

Thelma er ein af fjölmörgum landsliðskonum sem gengur til liðs við Val í vetur. Engu hefur verið til sparað í leikmannasöfnun hjá Valsliðinu en Valur endaði í 7.sæti Pepsi deildarinnar á síðustu leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.