31.12.21 - 19:19
Victor Pálsson
Elías framlengir til 2026 (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elías Rafn Ólafsson, markvörður íslenska landsliðsins, hefur skrifað undir nýjan samning við Midtjylland í Danmörku.
Þessi 21 árs gamli leikmaður hefur krotað undir samning til ársins 2026 og er því samningsbundinn næstu fjögur árin.
Elías spilaði sinn fyrsta leik fyrir Midtjylland fyrr á þessu ári og var valinn leikmaður mánaðarins í september.
Elías spilaði einnig sinn fyrsta A-landsleik á þessu ári og hefur hrifið marga með sinni frammistöðu í Danmörku.
Elías gekk í raðir Midtjylland frá Breiðablik árið 2018 og hefur nú spilað níu deildarleiki fyrir liðið.