31.12.21 - 14:12
Arnar Laufdal Arnarsson
Heiðdís til Benfica (Staðfest)

Mynd: Benfica

Mynd: Benfica

Varnarmaðurinn öflugi Heiðdís Lillýardóttir hefur gengið til liðs við portúgalska stórveldið Benfica en þetta kemur fram á heimasíðu þeirra í dag.
Heiðdís er uppalin á Egilsstöðum og spilaði einnig með Selfoss en hefur verið í Breiðablik s.l. fimm tímabil.

Heiðdís skrifar undir lánssamning út tímabilið svo munu Benfica og Breiðablik ræða um framhaldið og hvort Heiðdís muni skrifa undir endanleg félagsskipti þegar lánssamningnum lýkur.
"Ég er mjög ánægð með allt hérna, aðstaðan er til fyrirmyndar. Allt í kringum klúbbinn er miklu stærra en það sem ég er vön og allir eru búnir að taka mér vel. Ég er strax búin að kynnast kollegum mínum og finnst ég vera velkomin" Sagði Heiðdís í viðtali í Portúgal.
Heiðdís er nú þegar byrjuð að æfa með Benfica.
"Ég er byrjuð að æfa með liðinu og eru æfingarnar hraðar og krefjandi. Ég tel þetta vera góða áskorun fyrir mig"
"Mig hefur alltaf dreymt um að fara í atvinnumennsku. Benfica er eitt stærsta félag í heimi og það er algjör heiður að vera komin hingað. Ég er hér til að vinna bæði portúgölsku deildina og portúgalska bikarinn"
Benfica endaði í 3. sæti í þeirra meistaradeildarriðli en Benfica voru í riðli ásamt Lyon, Bayern og Hacken.
Smelltu hér til að sjá fréttatilkynningu Benfica