Fotbolti.net
31.12.21 - 20:08
Victor Pálsson

Mark Gundelach samdi við botnliðið í Danmörku (Staðfest)

Mark Gundelach samdi við botnliðið í Danmörku (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Bakvörðurinn Mark Gundelach hefur skrifað undir samning við Fremad Amager í fyrstu deildinni í Danmörku.
Þetta staðfesti Fremad Amager í dag en Gundelach kemur til danska félagsins frá KA á Akureyri.

Gundelach fékk ekki framlengingu hjá HK Koge fyrr á þessu ári og ákvað því að taka slaginn með KA í efstu deild í sumar.

Nú er þessi 29 ára gamli leikmaður mættur aftur til heimalandsins og skrifar undir til ársins 2023.

Gundelach er fyrrum leikmaður bæði Nordsjælland og Sonderjyske í efstu deild í Danmörku.

Það hefur ekkert gengið hjá Fremad Amager á tímabilinu en liðið er á botni B-deildarinnar með 12 stig úr 17 leikjum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.