Sævar Þór Gíslason framherji Selfyssinga fór á kostum í 9-1 stórsigri liðsins á Sindra í annarri deildinni á laugardaginn. Sævar Þór skoraði fjögur mörk og lagði upp tvö í leiknum en hann er leikmaður 10.umferðar í annarri deldinni.
Framherjinn Sævar Þór Gíslason er uppalinn á Selfoss. Eftir að hafa leikið með ÍR í tvö tímabil og síðan Fylki í sjö ár gekk hann aftur til liðs við Selfyssinga síðastliðið haust. Sævar hefur skorað alls 47 mörk í 119 leikjum í efstu deild á ferlinum en þessi 31 árs gamli leikmaður hefur einnig leikið sjö landsleiki fyrir Íslands hönd.
,,Það er bullandi sjálfstraust í liðinu, menn eru allir farnir að vinna að því sama og hjálpa hvor öðrum. Liðsheildin og andinn í liðinu er mjög góður, það hefur mikið að segja og þjálfarinn (Zoran Miljkovic) kom með nýjar víddir í þetta."
Selfyssingar eru núna í öðru sæti í annarri deildinni og stefnan hjá liðinu er sett upp í fyrstu deildina.
,,Stefnan er sett upp en eins og mottóið er eflaust hjá flestum þá er það einn leikur í einu og við munum síðan sjá hvert það leiðir okkur. Stemningin hefur farið stigvaxandi og það hefur verið virkilega gaman."
,,Það voru örugglega 200-300 áhorfendur á vellinum á laugardaginn, ég veit ekki hvað það voru margir en þetta er bara jákvætt og vonandi er að Selfyssingar haldi áfram að koma á völlinn. Stuðningsmannaklúbbur Árborgar er líka farinn að syngja hjá okkur á leikjum og þetta er allt jákvætt."
Sævar Þór hefur fundið sig vel í fimm síðustu leikjum og skorað í þeim níu mörk. Hverju er það að þakka? ,,Það er breytt taktík hjá liðinu, ég fæ meiri aðstoð frammi og þá losnar um mann. Formið er líka að verða betra og betra."
Sævar Þór er eftir þessi mörk orðin markahæstur í annarri deildinni með tólf mörk. ,,Ég stefni bara á að halda mínu striki og hjálpa liðinu eins og ég get. Það er ekki markmiðið að vera markahæstur en það er gaman þegar að vel gengur."
Eftir að hafa leikið í með Fylki í Landsbankadeildinni ár gekk Sævar til liðs við Selfyssinga síðastliðið haust. Hann segir muninn milli Landsbanka og 2.deildar vera mikinn.
,,Það er gríðarlegur munur á öllu. Það er getumunur á liðunum, leikmönnum og í dómgæslu og öðru. Þetta eru mikið til nýliðar sem að dæma en síðan koma reynsluboltar og dæma inn á milli og maður finnur muninn á því," sagði Sævar sem gekk til liðs við uppeldisfélagið vegna atvinnu sinnar.
,,Ég er sölufulltrúi hjá Mest og það er mikið að gera hjá okkur. Ég sá mér ekki fært að keyra til Reykjavíkur til að spila. Þegar að vinnudagurinn er búinn rúlla ég niður á völl. Ég nýt mín vel hér og það gengur vel."
,,Umgjörðin er líka að að verða betri í fótboltanum hérna. Stjórn og meistaraflokksráð eru að standa vel við bakið á þessu, fyrirtæki eru að koma inn og það er allt í blóma. Það er allt til staðar til að fara upp en sveitarfélagið mætti koma betur inn í þetta upp á aðstöðuna að gera, það er það eina sem er hægt að gagnrýna. Það þyrfti að taka völlinn upp og yrði gaman að sjá það á haustdögum, að grasið yrði rifið upp og skipt um," sagði Sævar Þór Gíslason leikmaður 10.umferðar að lokum við Fótbolti.net.
Sjá einnig:
Leikmaður 9.umferðar - Arnar Hallsson (ÍR)
Leikmaður 8.umferðar - Denis Curic (Höttur)
Leikmaður 7.umferðar - Björn Pálsson (Sindri)
Leikmaður 6.umferðar - Kristinn Geir Guðmundsson (Völsungur)
Leikmaður 5.umferðar - Hilmar Rafn Emilsson (Haukar)
Leikmaður 4.umferðar - Hilmar R. Emilsson (Haukar)
Leikmaður 3.umferðar - Dusan Ivkovic (KS/Leiftur)
Leikmaður 2.umferðar - Magnús Ólafsson (ÍR)
Leikmaður 1.umferðar - Denis Cardaklija (Sindra)




