Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 02. júlí 2007 07:57
Magnús Már Einarsson
2.deild: Leikmaður 7.umferðar - Björn Pálsson (Sindri)
Björn (til hægri) í leik gegn Völsungi fyrr á tímabilinu.
Björn (til hægri) í leik gegn Völsungi fyrr á tímabilinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hilmar V. Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Fótbolti.net hefur í sumar valið leikmann umferðarinnar í efstu þremur deildum karla. Björn Pálsson átti stórleik í vörn Sindra þegar að liðið gerði 1-1 jafntefli við topplið Hauka í annarri deildinni síðastliðið föstudagskvöld. Björn kórónaði frammistöðu sína í leiknum með því að gera jöfnunarmarkið þegar tíu mínútur voru til leiksloka.

Björn Pálsson
Björn Pálsson er tvítugur varnar og miðjumaður sem er uppalinn hjá Sindra. Eftir að hafa stigið sín fyrstu skref með meistaraflokki Sindra í fyrstu deildinni 2002 lék hann með liðinu í annarri og þriðju deild árin 2003 og 2004. Árið 2005 gekk hann til liðs við Víking Reykjavík og lék með öðrum flokki félagsins áður en hann kom aftur á Hornafjörð og var fastamaður í liði Sindra í fyrra. Alls hefur Björn skorað fjögur mörk í 61 leik með Sindra í deild og bikar.
,,Maður kemst sjaldan í gegnum einhverja leiki án þess að gera einhver mistök. Við stefnum alltaf á að spila öruggt og vera ekki að flækja hlutina með einhverjum sambabolta en það gekk ágætlega í þessum leik, við náðum að standa í þeim eins og við stefndum að," sagði Björn við Fótbolta.net.

,,Þeir spiluðu leikinn gífurlega vel, áttu mörg færi og eru topplið, langbesta liðið í deildinni að mínu mati. Út af því liggur við að maður hafi fagnað jafntefli gífurlega eins og sigri."

Mikið fjör hefur verið á Höfn í Hornafirði um helgina vegna humarhátíðarinnar og því var það ágætis byrjun á helginni fyrir Sindramenn að ná jafntefli gegn toppliðinu.

,,Það hjálpaði til við að gíra mann upp. Manni langaði að fara í helgina eftir að hafa staðið sig vel, það hefði verið leiðinlegt ef þetta hefði endað illa."

Haukar hafa skorað langmest í fyrstu sjö umferðunum eða 21 mark. Sindramenn hafa fengið á sig 20 mörk í sumar en náðu að loka vörninni vel gegn Haukum og fá einungis á sig eitt mark.

,,Það var alltaf stefnan að halda hreinu og ná þannig að gera þetta að hörkuleik. Þó við séum búnir að fá á okkur mörg mörk erum við búnir að halda hreinu og þetta hefur komið í gusum yfir okkur."

,,Á móti ÍR komu sjö og á móti KS/Leiftri komu fimm. Við liggjum frekar aftarlega og stefnum að því að skora eitt til tvö og fá ekki á okkur mörk. Þá er alltaf þægilegt fyrir andstæðingana þegar að þeir komast yfir á móti okkur, þá geta þeir slakað og við þurfum að koma framar,"
sagði Björn.

Sindri er núna í sjöunda sætinu í annarri deild með sjö stig eftir jafnmarga leiki. Liðið hefur náð í öll sín stig á heimavelli en gengið verr á útivöllum.

,,Þetta er einhver djöfulsins draugur sem er að elta okkur og kemur með okkur í ferðirnar á útivelli. Oft virðist vera meiri barátta hérna á heimavelli en ég veit það ekki, þetta gæti verið reynsluleysi að ná ekki í fleiri stig á útivelli," sagði Björn sem er ekkert alltof ánægður með byrjun Sindra í sumar.

,,Nei ekkert voðalega en hópurinn er samt lítill og við bjuggumst ekki við því að vera í neinni toppbaráttu. Við erum heppnir að önnur lið hafa ekki verið að hala inn mörg stig."

Sindramenn ætla ekki að detta neðar í töflunni. ,,Það er alveg klárt mál, það er hundleiðinlegt að vera í botnbaráttu, þó að það falli bara eitt lið þá er þetta örugglega miklu meiri barátta en í fyrra þó að það hafi vissulega verið mikil barátta," sagði Björn sem telur Sindraliðið vera betra en í fyrra þegar að það var í fallbaráttu allt tímabilið og bjargaði sér frá falli í síðustu umferð.

,,Já ég held það. Þó að við höfum ekki bætt við okkur leikmönnum og meira að segja misst leikmenn þá er liðið betra og í betra formi líka," sagði Björn Pálsson leikmaður 7.umferðar í annarri deild að lokum við Fótbolta.net.

Sjá einnig:
Leikmaður 6.umferðar - Kristinn Geir Guðmundsson (Völsungur)
Leikmaður 5.umferðar - Hilmar Rafn Emilsson (Haukar)
Leikmaður 4.umferðar - Hilmar R. Emilsson (Haukar)
Leikmaður 3.umferðar - Dusan Ivkovic (KS/Leiftur)
Leikmaður 2.umferðar - Magnús Ólafsson (ÍR)
Leikmaður 1.umferðar - Denis Cardaklija (Sindra)
Slapp
banner
banner