Fótbolti.net mun í sumar velja leikmann umferðarinnar í efstu þremur deildum karla. Önnur umferðin í annarri deild karla fór fram í gær. Þar fór framherjinn Magnús Ólafsson á kostum með liði ÍR þar sem hann skoraði fimm mörk í 7-0 sigri liðsins á Sindra og er hann leikmaður 2.umferðarinnar á Fótbolti.net.
Magnús Ólafsson
Framherjinn Magnús Ólafsson gekk á dögunum til liðs við ÍR. Í fyrra lék hann með Njarðvík og fór síðar í heimafélag sitt Keflavík. Þessi 34 ára leikmaður gerði árið 2001 23 mörk í 18 leikjum með Haukum í 2.deildinni og fór í kjölfarið í KR þar sem hann varð Íslandsmeistari með liðinu árið 2002.
Magnús gekk til liðs við ÍR fyrr í mánuðinum og þetta var fyrsti leikur hans fyrir félagið. ,,Þetta er mjög góð byrjun og ég er mjög sáttur við fyrsta leik," sagði Magnús við Fótbolti.net.
Framherjinn Magnús Ólafsson gekk á dögunum til liðs við ÍR. Í fyrra lék hann með Njarðvík og fór síðar í heimafélag sitt Keflavík. Þessi 34 ára leikmaður gerði árið 2001 23 mörk í 18 leikjum með Haukum í 2.deildinni og fór í kjölfarið í KR þar sem hann varð Íslandsmeistari með liðinu árið 2002.
Magnús skoraði fjögur marka sinna í síðari hálfleik en hann segir fjórða mark sitt í leiknum hafa verið það besta. ,,Flott fyrirgjöf frá Ara (Gunnari Gíslasyni) sem skoraði líka og gott skallamark. Annars voru þau öll mjög fín þó ég segi sjálfur frá."
Árið 2001 var Magnús markahæstur í annarri deildinni þegar hann skoraði 23 mörk í 18 leikjum með Haukum. Aðspurður hvort að hann ætli að bæta þetta sagði hann: ,,Ég tek einn leik fyrir í einu, byrja á því að skora eitt mark og held síðan áfram. Ég hef ekkert spáð í það."
Magnús lék með Njarðvík í fyrra en skipti um mitt sumar yfir í heimafélag sitt Keflavík en hann kom ekki við sögu í Landsbankadeildinni.
,,Ég vil helst bara gleyma síðasta sumri, það var frekar lélegt og það eina jákvæða í því var að skipta yfir í Keflavík og fá að æfa þar með toppmannskap og toppþjálfara," sagði Magnús sem kláraði skólagöngu sína í Bandaríkjunum í vor.
,,Ég var að klára skólann í Bandaríkjunum þar sem að ég var með Hirti Hjartar, Jóhanni Hreiðarssyni, Bjarka Guðmunds og fleiri góðum köppum sem ég hef spilað með úti í 3-4 ár."
,,Ég kem heim í toppstandi en það er alltaf erfitt að koma heim og sanna sig á nokkrum dögum þegar maður er að fara að spila með nýju félagi. Þeir tóku vel á móti mér ÍR og allir þar. Þjálfararnir Siggi (Sigurður Þórir Þorsteinsson) og Ásgeir (Elíasson) og stjórnarmenn buðu mig velkominn og eins hópurinn," sagði Magnús en nokkur fleiri lið komu til greina.
,,Já já, það komu nokkur lið til greina. Ég fór á æfingu með Reyni Sandgerði og spilaði einn leik með þeim en ekkert varð úr því. Í fyrra átti ég lélegt tímabil en ég er mættur aftur. Ég ætla að gera góða hluti og mér líst vel á liðið, hópinn og alla umgjörð í kringum ÍR í dag."
ÍR-ingar mæta Selfyssingum á útivelli á fimmtudagskvöldið í mikilvægum leik. ,,Þetta er hörkuleikur, Selfossliðið hefur alltaf komið sterkt til leiks. Mér hefur alltaf liðið vel á Selfossi og ég hef skorað þarna síðustu tvö ár. Maður vonar það besta og við förum til að vinna alla okkar leiki, það er stefnan," sagði Magnús sem segir ÍR-liðið stefna á að fara upp úr annarri deildinni.
,,Við byrjum á að vinna einn leik í einu en stefnan er sett upp. Við erum með reynslumenn og unga leikmenn inn á milli og það er fínt í þessari deild. Við ættum að hafa burði til að fara upp," sagði Magnús Ólafsson, leikmaður 2.umferðar í 2.deildinni að lokum við Fótbolti.net.
Sjá einnig:
Leikmaður 1.umferðar - Denis Cardaklija (Sindra)



