Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 17. júlí 2007 16:04
Magnús Már Einarsson
2.deild: Leikmaður 9.umferðar - Arnar Hallsson (ÍR)
Arnar gefur boltann fyrir gegn ÍH.
Arnar gefur boltann fyrir gegn ÍH.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Arnar fagnar marki með liðsfélögum sínum á dögunum.
Arnar fagnar marki með liðsfélögum sínum á dögunum.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Fótbolti.net hefur í sumar valið leikmann umferðarinnar í efstu þremur deildum karla. Arnar Hallsson átti stórleik í vörn ÍR-inga þegar þeir gerðu 1-1 jafntefli við Hauka síðastliðið föstudagskvöld. Hann er leikmaður 9.umferðar í annarri deild hér á Fótbolti.net.

Arnar Hallsson
Varnarmaðurinn Arnar Hallsson hefur undanfarin ár ekki leikið fótbolta vegna meiðsla sem hann varð fyrir fyrir nokkrum árum. Þessi 35 ára gamli leikmaður sem er uppalinn hjá Víking tók hins vegar fram skóna í vetur og gekk til liðs við ÍR. Auk Víkings og ÍR lék Arnar á sínum tíma með Barðaströnd í 3.deildinni.
Arnar er sem stendur erlendis og Fótbolti.net náði því miður ekki á þennan reynslumikla leikmann en við töluðum þess í stað við Sigurð Þóri Þorsteinsson annan þjálfara ÍR.

,,Hann stóð sig mjög vel og liðið í heild sinni," sagði Sigurður Þórir um frammistöðu Arnars gegn Haukum

ÍR-ingar hafa einungis fengið átta mörk á sig í sumar og eru þeir í öðru sæti deildarinnar en Arnar hefur átt stóran þátt í því.

,,Við höfum fengið fæst mörk á okkur í deildinni og hann er einn af mikilvægum hlekkum í því," bætti Sigurður við.

,,Það var mikill fengur að fá hann, við erum með mjög reynslumikla menn í vörninni og góða menn fyrir utan þannig að við erum mjög vel settir varnarlega."

,,Hann hefur hjálpað okkur mikið og hann er góður í að peppa liðið upp fyrir leiki og í leikjum. Hann er búinn að vera í mjög góðu formi og hefur æft vel, bæði með okkur og sjálfur,"
sagði Sigurður Þórir um Arnar Hallsson, leikmann 9.umferðar í 2.deildinni.

Sjá einnig:
Leikmaður 8.umferðar - Denis Curic (Höttur)
Leikmaður 7.umferðar - Björn Pálsson (Sindri)
Leikmaður 6.umferðar - Kristinn Geir Guðmundsson (Völsungur)
Leikmaður 5.umferðar - Hilmar Rafn Emilsson (Haukar)
Leikmaður 4.umferðar - Hilmar R. Emilsson (Haukar)
Leikmaður 3.umferðar - Dusan Ivkovic (KS/Leiftur)
Leikmaður 2.umferðar - Magnús Ólafsson (ÍR)
Leikmaður 1.umferðar - Denis Cardaklija (Sindra)
Slapp
banner
banner