Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 28. maí 2007 09:15
Magnús Már Einarsson
2.deild: Leikmaður 3.umferðar - Dusan Ivkovic (KS/Leiftur)
Dusan tæklar Hilmar Rafn Emilsson framherja Hauka í leiknum á laugardaginn.
Dusan tæklar Hilmar Rafn Emilsson framherja Hauka í leiknum á laugardaginn.
Mynd: Víkurfréttir/Stefán Þór Borgþórsson
Dusan skallar boltann í leiknum gegn Haukum.
Dusan skallar boltann í leiknum gegn Haukum.
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Fótbolti.net hefur í sumar valið leikmann umferðarinnar í efstu þremur deildum karla. Þriðja umferðinni í 2.deild karla lauk á laugardaginn með þremur leikjum. Haukar og KS/Leiftur gerðu jafntefli í Hafnarfirði þar sem að gestirnir spiluðu sterkan varnarleik. Þar fór fremstur í flokki Dusan Ivkovic og er hann leikmaður 3.umferðarinnar hér á Fótbolta.net.

Dusan Ivkovic
Dusan Ivkovic er varnarmaður á 27.aldursári sem gekk til liðs við KS/Leiftur í fyrra eftir að hafa leikið í heimalandi sínu Serbíu. Hann lék þréttan leiki í annarri deildinni síðastliðið sumar og nú er hann aftur kominn til liðs við KS/Leiftur og mun hann leika með liðinu í sumar.
Dusan kom til landsins seinnipartinn á föstudaginn og því var leikurinn gegn Haukum sá fyrsti hjá honum á leiktíðinni.

KS/Leiftur gerði jafntefli við Aftureldingu í annarri umferðinni en leik liðsins gegn Hetti í fyrstu umferðinni var frestað þar sem að völlurinn á Ólafsfirði var þakin snjó. Dusan segist vera ánægður með tvö stig úr fyrstu tveimur leikjunum.

,,Já, tveir næstu leikir eru síðan á Siglufirði á móti Hetti og Magna og við munum reyna að vinna þá," sagði Dusan við Fótbolta.net í gær.

Ragnar Hauksson spilandi þjálfari KS/Leiftur var ánægður með Dusan í jafnteflinu gegn Haukum. ,,Hann var frábær í gær (í fyrradag). Mér finnst frábært að heyra þetta og ég sé alveg ástæðu til að velja hann mann umferðarinnar miðað við frammistöðu hans," sagði Ragnar sem segir Dusan vera lykilmann í sínu liði.

,,Hann var hjá okkur á síðasta ári. Þetta var hans fyrsti leikur og hann var nánast nýstiginn upp úr flugvél, hann kom seinnipartinn á föstudaginn og kemur beint í leikinn. Hann er lykilleikmaður hjá okkur, það er enginn spurning," bætti Ragnar við.

Eins og fyrr segir lék Dusan einnig með KS/Leiftri í fyrra en hann telur að leikurinn gegn Haukum á laugardaginn hafi ekki verið sá besti sem hann hefur leikið með KS/Leiftri. ,,Ég held ekki, ég spilaði nokkra fína leiki síðastliðið sumar," sagði Dusan sem líkar vel á Siglufirði þar sem hann býr.

,,Mér líkar mjög vel. Þetta er lítill en fallegur staður með góðu fólki," sagði Dusan en tveir vinar hans leika einnig hér á landi. ,,Ég á vini frá Serbíu sem spila á Íslandi, Nenad Zivanovic og Srdjan Gasic sem spila með Breiðablik."

Þessi sterki varnarmaður segir að KS/Leiftur gæti komist upp í 1.deidlina. ,,Við höfum ungt lið en við eigum kannski möguleika á að reyna að komast upp," sagði Dusan en hann telur liðið vera betra nú en í fyrra.

,,Ég held að þetta sé betra lið, þetta er ungt lið og við höfum fleiri leikmenn," sagði Dusan Ivkovic, leikmaður 3.umferðarinnar í annarri deild karla að lokum við Fótbolti.net.

Sjá einnig:
Leikmaður 2.umferðar - Magnús Ólafsson (ÍR)
Leikmaður 1.umferðar - Denis Cardaklija (Sindra)
Slapp
banner
banner