Fótbolti.net hefur í sumar valið leikmann umferðarinnar í efstu þremur deildum karla. Hilmar Rafn Emilsson fór á kostum í 5-2 sigri Hauka á Hetti í fimmtu umferðinni í annarri deild síðastliðinn laugardag. Hilmar Rafn skoraði fjögur mörk á tíu mínútna kafla í leiknum og er hann leikmaður umferðarinnar hjá Fótbolta.net aðra umferðina í röð.
Hilmar Rafn Emilsson er tvítugur framherji sem er uppalinn hjá Haukum. Hilmar Rafn hefur þrátt fyrir ungan aldur komið við sögu hjá meistaraflokki Hauka undanfarin fjögur ár. Hann lék sinn fyrsta meistaraflokksleik í 1.deildinni árið 2004, árið 2005 skoraði hann sjö mörk í sextán leikjum í fyrstu deildinni og í fyrra gerði hann tvö mörk í fyrstu deildinni, einnig í sextán leikjum.
Hilmar Rafn er núna kominn með níu mörk í fyrstu fimm leikjunum í annarri deildinni. Árið 2001 gerði Magnús Ólafsson núverandi leikmaður ÍR-inga 24 mörk í annarri deildinni með Haukum og hefur enginn skorað meira en það í deildinni undanfarin ár. Stefnir Hilmar Rafn á að skora meira en Magnús gerði árið 2001?
,,Maður verður bara að sjá hvernig gengur, hann er búinn að skora líka mikið núna kallinn en það er ekkert markmið að bæta það met. Maður reynir að skora í hverjum leik en aðalmálið er að vinna leikina og það er skýrt markmið hjá okkur Haukunum að fara í fyrstu deildina á næsta ári."
,,Maður reynir að hjálpa til við það eins og maður getur og reynir að skora mörk, metið kemur bara ef það kemur en maður býst ekkert við því," sagði Hilmar Rafn sem rámar örlítið í mörkin hans Magnúsar árið 2001.
,,Já maður var í gæslunni þá og boltasækir en maður man ekki sérstaklega eftir því. Maður las það í fótboltasumrinu einhverntímann en það er frábært að skora 24 mörk og það verður örugglega seint bætt."
Haukar leika heimaleiki sína á gervigrasi en Hilmar vildi frekar spila á grasi. ,,Það er eitthvað við grasið, sumarfílingurinn, maður er búinn að spila á gervigrasi allan veturinn og manni langar að komast á gras en þetta er ákvörðun sem stjórnin tók hjá Haukum og það verður að fylgja henni."
Haukar eru eina liðið í annarri deild sem að komst í fjórðu umferðina í VISA-bikarnum. Liðið sigraði Víking Ólafsvík úr fyrstu deild í þriðju umferð en Haukarnir mæta Leikni á heimavelli í bikarnum í næstu viku og stefna á að fara lengra í keppninni.
,,Já við fengum Leikni í bikarnum og það verður hörkuleikur við 1.deildarlið. Við erum búnir að vinna þá tvisvar í vetur og mætum óhræddir í þann leik. Við stefnum á að vinna þá, þeir eru með gott lið og það verður gaman að mæta Hilmari Trausta (Arnarsyni) sem er kominn í Leikni, maður spilaði með honum upp alla yngri flokkana," sagði markamaskínan Hilmar Rafn Emilsson að lokum við Fótbolta.net.
Sjá einnig:
Leikmaður 4.umferðar - Hilmar R. Emilsson (Haukar)
Leikmaður 3.umferðar - Dusan Ivkovic (KS/Leiftur)
Leikmaður 2.umferðar - Magnús Ólafsson (ÍR)
Leikmaður 1.umferðar - Denis Cardaklija (Sindra)



