Fótbolti.net hefur í sumar valið leikmann umferðarinnar í efstu þremur deildum karla. Fjórðu umferðinni í 2.deild karla lauk um helgina. Hilmar Rafn Emilsson framherji Hauka sem hefur skorað grimmt í upphafi móts, skoraði fyrra mark liðsins í 2-1 sigri á Aftureldingu í fjórðu umferðinni nú fyrir helgi. Hilmar Rafn var skæður í leiknum og hann er leikmaður 4.umferðarinnar í annarri deildinni hér á Fótbolta.net.
Hilmar Rafn Emilsson er tvítugur framherji sem er uppalinn hjá Haukum. Hilmar Rafn hefur þrátt fyrir ungan aldur komið við sögu hjá meistaraflokki Hauka undanfarin fjögur ár. Hann lék sinn fyrsta meistaraflokksleik í 1.deildinni árið 2004, árið 2005 skoraði hann sjö mörk í sextán leikjum í fyrstu deildinni og í fyrra gerði hann tvö mörk í fyrstu deildinni, einnig í sextán leikjum.
,,Ég hef ekki skorað mikið af skallamörkum, maður er ekki hár í loftinu en maður á það til að lauma inn einu og einu skallamarki."
Hilmar Rafn hefur skorað fimm mörk í fyrstu fjórum leikjunum í annarri deildinni en hann leikur í fremstu víglínu í ár eftir að hafa leikið á kantinum í fyrra sem og upp flest alla yngri flokkana.
,,Ég var eiginlega alltaf á kantinum. Á miðári í 2.flokki fór ég fram og spilaði fyrsta tímabilið mitt frammi þá. Ég spilaði frammi undir stjórn Daða Dervic í fyrstu deildinni síðan. Tímabilið eftir það var ég færður aftur á kantinn en Andri gaf mér aftur séns frammi núna," sagði Hilmar sem er ánægður með gengi Hauka í fyrstu leikjunum en liðið er á toppi deildarinnar með tíu stig.
,,Liðið er að spila mjög vel, það er góður mórall í liðinu og liðið er að ná vel saman miðað við kannski hvernig þettta var í fyrra. Þegar maður byrjar tapa er erfitt að ná sér á strik. Þetta er búið að ganga vel í byrjun og þegar að sigrarnir koma kemur sjálfstraustið með."
Hilmar ber Andra Marteinssyni þjálfara Hauka söguna vel. ,,Andri er frábær þjálfari, ég er mjög ánægður með hann. Hann gaf mér sjálfstraust með því að hafa mig frammi og maður er vonandi búinn að launa honum eitthvað með því að gera þessi mörk en það er liðið sem er að spila vel og stífar æfingar í vetur hafa borgað sig."
Þessi efnilegi sóknarmaður hefur ekki sett sér ákveðið markmið hvað varðar markaskorun í sumar. ,,Það er bara að reyna að skora í hverjum leik en aðallega að fara í hvern leik til að vinna og komast í næstu deild," segir Hilmar en stefnan hjá Haukum er að fara upp.
,,Já það er vonandi að það takist. Ef við höldum áfram að spila eins og við erum að spila núna þá er vonandi að það takist."
Sjá einnig:
Leikmaður 3.umferðar - Dusan Ivkovic (KS/Leiftur)
Leikmaður 2.umferðar - Magnús Ólafsson (ÍR)
Leikmaður 1.umferðar - Denis Cardaklija (Sindra)


