Fótbolti.net hefur í sumar valið leikmann umferðarinnar í efstu þremur deildum karla. Denis Curic framherji Hattar fór á kostum í 4-1 sigri liðsins á Völsungi síðastliðið föstudagskvöld en hann gerði þrennu í leiknum. Hann er leikmaður 8.umferðar hér á Fótbolti.net.
Denis Curic er tvítugur framherji frá Slóveníu. Hann lék með NK Korotan og NK Dravograd í heimalandinu áður en hann hélt til Austurríkis og gekk til liðs við Sak Klagenfurt. Eftir að hafa leikið með Klagenfurt fór hann í Atsv Wolfsberg sem er einnig frá Austurríki. Í vor gekk hann síðan til liðs við Hött ásamt tveimur löndum sínum.
Hattarmenn sem unnu þriðju deildina í fyrra byrjuðu tímabilið ekki vel en hafa nú unnið tvo leiki í röð. ,,Við erum mjög ánægðir með það, andrúmsloftið hjá félaginu er mjög gott þessa stundina. Auðvitað erum við ánægðir núna en við munum reyna að vinna fleiri leiki," sagði Denis en Hetti hefur einnig gengið betur að skora í síðustu tveimur leikjum.
,,Við höfum skorað sjö mörk í síðustu tveimur leikjum. Það er vegna þess að við erum að spila mun betur núna og úrslitin sýna það. Þetta var erfitt í byrjun þar sem að þetta var glænýtt lið og við þekktum hvorn annan ekki vel. Eftir nokkra leiki fundum við taktinn og rétta formið."
Denis kom til Hattar í vor ásamt tveimur löndum sínum, miðjumanninum Aljosa Gluhovic og varnarmanninum Uros Johan.
,,Það hjálpar mér mikið að hafa leikmenn frá sama landi hérna. Við höfum spilað saman frá unga aldri og við erum vanir að spila saman. Ég vil spila sóknarbolta og þessir tveir leikmenn frá Slóveníu skilja slíkan fótbolta og geta gefið góðar sendingar á mig," sagði Curic en hvernig kom það til að hann gekk til liðs við Hött?
,,Vinur minn sem hefur spilað áður hér á landi (Goradz Mihailov fyrrum leikmaður Hattar) hafði samband og sagði að þetta væri gott tækifæri fyrir mig og feril minn. Markmið mitt er ekki að stoppa hér, ég vil spila í sterkari deild."
,,Ég er mjög ánægður hér á Egilsstöðum, mér er mjög vel tekið af strákunum í liðinu og einnig af stjórn Hattar," sagði Curic en býst hann við að spila áfram með Hetti á næsta tímabili?
,,Ég veit það ekki ennþá, fyrsta markmið mitt er að spila vel út leiktíðina og þegar að tímabilið klárast mun ég sjá hvað gerist," sagði Denis Curic leikmaður 8.umferðar við Fótbolta.net.
Sjá einnig:
Leikmaður 7.umferðar - Björn Pálsson (Sindri)
Leikmaður 6.umferðar - Kristinn Geir Guðmundsson (Völsungur)
Leikmaður 5.umferðar - Hilmar Rafn Emilsson (Haukar)
Leikmaður 4.umferðar - Hilmar R. Emilsson (Haukar)
Leikmaður 3.umferðar - Dusan Ivkovic (KS/Leiftur)
Leikmaður 2.umferðar - Magnús Ólafsson (ÍR)
Leikmaður 1.umferðar - Denis Cardaklija (Sindra)




