Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 25. júní 2007 07:42
Magnús Már Einarsson
2.deild: Leikmaður 6.umferðar - Kristinn Geir Guðmundsson (Völsungi)
Kristinn Geir handsamar boltann en við hlið hans er Baldur Þórólfsson.
Kristinn Geir handsamar boltann en við hlið hans er Baldur Þórólfsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hilmar Valur
Mynd: Fótbolti.net - Hilmar Valur
Fótbolti.net hefur í sumar valið leikmann umferðarinnar í efstu þremur deildum karla. Kristinn Geir Guðmundsson markvörður Völsungs varði eins og berserkur þegar að liðið gerði markalaust jafntefli gegn ÍR á laugardaginn. Kristinn er leikmaður 6.umferðarinnar í 2.deild hér á Fótbolti.net.

Kristinn Geir Guðmundsson
Kristinn Geir Guðmundsson er 27 ára markvörður sem er í láni hjá Völsungi frá Val. Kristinn Geir er uppalinn hjá Val en hann hefur einnig leikið með ÍR, Dalvík og ÍBV hér á landi. Kristinn sem lék á sínum tíma með U-17 og U-19 ára landsliði Íslendinga á fimm leiki að baki í efstu deild hér á landi. Kristinn fór til Völsungs á láni frá Val í vor.
,,Þetta gekk upp, ég varði nokkur einn á móti einum færi og maður valdi rétt í raun og veru," sagði Kristinn Geir við Fótbolta.net í gær.

,,Það var algjört nauðsyn að halda hreinu. Við erum ekki búnir að halda hreinu í sumar hvorki í deild né bikar þannig að það var gríðarlega sterkt að ná að halda hreinu núna og eitthvað sem við verðum að gera meira af, vörn, miðja og ég."

Kristinn Geir hefur átt við meiðsli að stríða undanfarin ár og þá hefur hann þurft að sætta sig við að sitja á varamannabekknum hjá Val. Það er því kærkomið fyrir hann að fá að spila með Völsungi.

,,Það er mjög fínt að sjálfsögðu. Þessi blessaða bekkjarseta hefur að sjálfsögðu verði pirrandi og svo hefur maður lent í miklum meiðslum."

,,Ég sleit krossbönd fyrir tveimur árum síðan þannig að 2005 sumarið var nokkurnvegin ónýtt og sumarið í fyrra var algjörlega ónýtt, maður var rétt svo með,"
sagði Kristinn Geir en hann fór fyrst til Völsungs á láni til að komast í leikæfingu.

,,Ég spilaði bara 90 mínútur í vetur og þetta var ákveðið fyrst til að fá leikæfingu en síðan vatt þetta upp á sig og þetta hefur verið þrælfínt. Það er komið miklu meira hjarta inn í þetta heldur en þegar við byrjuðum."

Krisitinn Geir kom til Völsungs á láni í vor og á sama tíma fór Baldur Þórólfsson varnarmaður úr Val einnig til Húsvíkinga á láni. Þeir búa á Höfuðborgarsvæðinu en fljúga í leiki með Völsungi.

Upphaflega var lánssamningurinn þeirra hjá Völsungi í einn mánuð eða til 13.júní en þeim hefur líkað vel og því hefur samningurinn verið framlengdur til 13.júlí.

,,Við ákváðum að taka auka mánuð og síðan ætlum við að sjá til hvað við gerum. Þetta er allt í samráði við Valsmenn líka. Við ætlum að athuga hvernig framhaldið verður 13.júlí," sagði Kristinn Geir Guðmundsson, leikmaður 6.umferðar við Fótbolta.net að lokum.

Sjá einnig:
Leikmaður 5.umferðar - Hilmar Rafn Emilsson (Haukar)
Leikmaður 4.umferðar - Hilmar R. Emilsson (Haukar)
Leikmaður 3.umferðar - Dusan Ivkovic (KS/Leiftur)
Leikmaður 2.umferðar - Magnús Ólafsson (ÍR)
Leikmaður 1.umferðar - Denis Cardaklija (Sindra)
Slapp
banner