Branthwaite, Zirkzee og Olise til Man Utd? - Potter til Hollands - Nunez til Barca og Osimhen til Chelsea
   mán 08. janúar 2018 21:15
Ívan Guðjón Baldursson
Liverpool lækkaði verðmiðann á Coutinho
Mynd: Getty Images
Jordi Mestre, varaforseti Barcelona, segir að félagið hafi fengið Philippe Coutinho á afslætti.

Barcelona þarf að greiða um 142 milljónir punda fyrir Coutinho og heldur Mestre því fram að upphæðin hafi verið talsvert hærri síðasta sumar.

Liverpool hafnaði þremur tilboðum í Coutinho síðasta sumar en óljóst er uppá hversu mikið þau hljóðuðu.

„Við höfum alltaf viljað fá Coutinho til Barcelona. Að fá hann í janúar er jákvætt því kaupverðið er talsvert lægra heldur en um sumarið," sagði Mestre.

„Ég má ekki gefa upp neinar tölur því þá væri ég að fara gegn samningi sem við gerðum við Liverpool. Það mikilvæga er að leikmaðurinn er kominn til Barcelona."

Fregnir frá Spáni segja að Liverpool hafi hafnað rúmlega 170 milljónum punda í Coutinho síðasta sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner