SKÝRSLAN: Þórssigur í sjö marka veislu á Grenivík
Hvað réði úrslitum?
Kairo Edwards-John klikkaði á vítaspyrnu á ögurstundu, sem hefði jafnað leikinn fyrir heimamenn. Leikurinn var kaflaskiptur og rennblautur völlurinn spilaði stórt hlutverk. Sigurinn hefði getað dottið hvoru megin sem er, en það voru gestirnir sem skoruðu fleiri.
Bestu leikmenn
1. Fannar Daði Malmquist Gíslason
Átti marga frábæra spretti á kantinum og skapaði mikla hættu við mark Magna.
2. Kairo Edwards-John
Skoraði tvö og var eins og oft áður besti leikmaður Magna. Hann fer þó svekktur í háttinn í kvöld, því að hann klúðraði vítaspyrnu í uppbótartíma sem hefði tryggt Magna dýrmætt stig.
Atvikið
Vítaklúðrið. Það var allt á suðupunkti þegar spyrnan var dæmd og fagnaðaröskur Þórsara voru hávær þegar Kairo setti boltann framhjá markinu.
Hvað þýða úrslitin?
Þórsarar stökkva upp í 5. sæti deildarinnar og keppast nú bara að því að enda sem hæst á töflunni. Magni fara úr 10. sætinu niður í það ellefta. Þeirra bíður blóðug fallbarátta um síðasta örugga sætið í Lengjudeildinni.
Vondur dagur
Varnarleikur liðanna fer ekki í sögubækurnar sem sá allra besti. Völlurinn hjálpaði ekki heldur og því fengu áhorfendur markaveislu. Það var ekkert grín að reyna að fóta sig á grasinu. Enginn kvartar yfir því! Nema kannski varnarmennirnir.
Dómarinn - 7
Ég sá ekki almennilega hvað gerðist í vítaspyrnudóminum í lokin, en fram að því hafði Sveinn dæmt leikinn vel.



