SKÝRSLAN: Auðvitað jafntefli hjá Víking og KA
Hvað réði úrslitum?
Hvorugt liðið gerði nóg til að vinna eða tapa eiginlega. Það réði úrslitum að lokum. Jafntefli samtals númer 20 hjá liðunum samanlagt!
Bestu leikmenn
1. Kwame Quee
Líflegur í gegnum allan daginn og eftir að hann þurfti að fara útaf meiddur varð lítið úr sköpuninni hjá heimamönnum.
2. Guðmundur Steinn Hafsteinsson
Skoraði og var duglegur að koma sér í færi en það er ekki síður hæfileikinn hans til að halda bolta uppi á topp og síðan dreifa honum í kringum sig sem skiptir máli fyrir KA.
Atvikið
Meiðsli Sölva verður fyrir valinu hér. Bæði var það að Víkingar lentu í brasi með skipulagið og fengu á sig mark í kjölfarið en ekki síður verða vangaveltur uppi um það hversu alvarleg meiðslin eru...og hvort Sölvi hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Víking?
Hvað þýða úrslitin?
Status quo fyrir Víking, nokkuð afgerandi í 10.sæti deildarinnar. KA komast upp fyrir íA með þessu stigi og færast nær miðjunni.
Vondur dagur
Fyrir sigurviljann bara.
Engir afgerandi leikmenn sem áttu eitthvað sérstaklega erfitt en það vantaði uppá það að sækja sigur í báðum þessum liðum, orðin jafnteflunum of vön.
Engir afgerandi leikmenn sem áttu eitthvað sérstaklega erfitt en það vantaði uppá það að sækja sigur í báðum þessum liðum, orðin jafnteflunum of vön.



