SKÝRSLAN: Flautumark HK sá til að HK og KR deildu stigum
Hvað réði úrslitum?
Þrautseigja HK-inga skilaði jafntefli í dag, voru mun meira með boltann og voru þolinmóðir í seinni hálfleik í sóknarleiknum og þeir uppskáru mark í lokin sem var verðskuldað að mínu mati.
Bestu leikmenn
1. Atli Sigurjónsson
Atli var lang besti maður KR, skoraði gott mark og átti sláarskot og var eini sem bjó til einhvað fyrir KR-inga
2. Beitir Ólafsson
Beitir var frábær í seinni hálfleik og sá til þess að KR-ingar fara með 1 stig úr Kórnum í kvöld, mikilvægar vörslur í lok leiks sem voru KR-ingum mikilvægar þegar horft er í Evrópubaráttuna sem þeir eru í.
Atvikið
Markvarsla Beitis í lokin sem bjargar stiginu fyrir KR, Atli Arnarson komst einn gegn Beiti þegar rúm mínúta var eftir af leiknum og Beitir gerði sig stóran og varði vel
Hvað þýða úrslitin?
Þau einfaldlega þýða það að KR-ingar eru í 5. sæti deildarinnar með 28 stig og HK-ingar eru í 9. sæti með 20 stig.
Vondur dagur
Jón Arnar Barðdal var slakur í kvöld, var ekki mikið í takt við leikinn og var að tapa boltanum mikið og gerði litlu hlutina illa eins og að skila boltanum á næsta mann og var ekki að koma sér í nein færi
Dómarinn - 7,5
Helgi Mikael bara fínn í dag og ekki mikið að segja um hans frammistöðu, ágætis flæði í leiknum og var að spjalda menn réttilega og var bara solid í dag



