SKÝRSLAN: Grótta átti ekki séns í gæði Vals á Origo í kvöld
Hvað réði úrslitum?
Gæði Valsmanna réði þessu og skoruðu þeir sex mörk í kvöld. Grótta byrjuðu leikinn af krafti en síðan settu Valsmenn vélina í annan gír og gengu frá leiknum með þremur mörkum í síðari hálfleik.
Bestu leikmenn
1. Aron Bjarnason (Valur)
Maður leiksins í kvöld. Aron heldur áfram að spila frábærlega. Lagði upp tvö í kvöld ásamt því að skora tvö sjálfur.
2. Eiður Aron Sigurbjörnsson
Eiður Aron var frábær í kvöld ásamt Rasmus og skoraði einnig flott mark í kvöld.
Atvikið
Öll mörk Vals en ég ætla setja þriðja mark Vals í þennan glugga - Aron Bjarnason fékk boltann hægra meginn og fann Sigurð Egil sem klýndi boltanum upp í samúel fjær. Sturlað mark hjá Sigga Lár
Hvað þýða úrslitin?
Valsmenn eru komnir með níu og hálfan fingur á Íslandsmeistarartitilinn en Grótta er á leiðinni niður.
Vondur dagur
Kristófer Melsted - Aron Bjarnason og Birkir Már löbbuðu upp vænginn hans í kvöld og Kristófer réði ekkert við það.
Dómarinn - 10
Sigurður Hjörtur fær tíu frá mér í kvöld. Lét leikinn fljóta vel, en hann hefur legið undir gagnrýni í sumar en í kvöld var hann geggjaður.



