SKÝRSLAN: Bragðdaufur sigur hjá Stjörnumönnum
Hvað réði úrslitum?
Stjarnan skoraði eina mark leiksins og það úr vítaspyrnu, það skildi liðin að.
Bestu leikmenn
1. Sigurjón Daði Harðarson (Fjölnir)
Sigurjón spilaði sinn fyrsta deildarleik fyrir Fjölni og spilaði eins og hann væri að spila sinn hundraðasta, varði vel, greip fyrirgjafiir, kýldi hornspyrnu frá og gríðarlega öruggur, þurfti vítaspyrnu til að skora framhjá honum í dag.
2. Haraldur Björnsson (Stjarnan)
Halli var sömuleiðis flottur í marki Stjörnunnar, gerði allt rétt sem hann þurfti að gera, verkefnin voru ekkert mörg eða voðalega flókin en hann hélt fókus allan tímann og greip inní þegar þurfti.
Atvikið
Rauða spjaldið á Guðjón Pétur, jesús Guðjón hvað hann var vitlaus að láta espa sig upp í að kýla Grétar í punginn í stöðunni 1-0 á síðustu mínútunni.
Hvað þýða úrslitin?
Stjarnan er í bullandi evrópuséns í 4. sæti og eiga leik til góða á Blika. Fjölnir situr sem fastast á botninum sigurlausir.
Vondur dagur
Guðjón Pétur verður að taka þetta á kassann fyrir dómgreindarbrest.
Dómarinn - 6
Gerði vel að nappa Guðjón og gefa honum rautt en annars var Guðmundur Ársæll ekkert spes heilt yfir.



