SKÝRSLAN: Rauður stórsigur í Laugardalnum
Hvað réði úrslitum?
Þróttur R. hafði alla yfirhöndina í fyrri hálfleik og KR sá varla til sólar. KR liðið var alls ekki gott í fyrri hálfleik en komu þó mun ákveðnari og betri inn í þann seinni. Það virtist þó ekki duga og 5-0 niðurstaðan úr þessum leik.
Bestu leikmenn
1. Andrea Rut Bjarnadóttir (Þróttur R.)
Tvær stoðsendingar í dag og frábær leikur hjá henni. Virkilega ákveðin og barðist allan tímann. Ólöf Sigríður var sömuleiðis frábær. Skoraði eitt mark og lagði upp annað. Frábærir leikmenn.
2. Mary Alice Vignola (Þróttur R.)
Sterk og vinnusöm, góðar sendingar og krafturinn í henni var ótrúlegur. Frábær bakvörður sem verður örugglega eftirsótt af mörgum félögum eftir tímabilið.
Atvikið
Þegar Þróttur R. skoraði sitt fjórða mark rétt fyrir hálfleik og allur seinni hálfleikur eftir.
Hvað þýða úrslitin?
Þróttur R. situr í 6.sæti. Þær slíta sig aðeins frá fallbaráttunni, þó svo að mörg lið eru að berjast fyrir sæti sínu í deildinni á þessu tímabili.
KR er ennþá á botninum með 10 stig, en eiga þó tvo leiki inni.
KR er ennþá á botninum með 10 stig, en eiga þó tvo leiki inni.
Vondur dagur
Kristín Erna var í basli í fyrri hálfleik og var tekin út af í hálfleik. Það var lítið að gerast í sóknarleik KR í fyrri hálfleik, en tók töluverðum breytingum í seinni hálfleik.
Dómarinn - 8
Fínn leikur hjá dómurum í dag. Er nokkuð viss um að vítaspyrnan var rétt.


