SKÝRSLAN: Stórsigur Keflvíkinga dugði ekki inn í topp sex
Hvað réði úrslitum?
Stórkostlegur en um leið stórfurðulegur leikur sem sá 12 mörk. Keflavík byrjaði betur en Fram tók svo yfir en misstu Keflvíkingana svo frá sér. Varnarleikur var ekki hátt skrifaður í dag endilega en sóknirnar voru oft mjög góðar.
Bestu leikmenn
1. Adam Ægir Pálsson
Þrjár stoðsendingar og mark. Fyrirgjöfin á Kian Williams er einhver rosalegasti kross sem ég hef séð. Var frábær í dag.
2. Kian Williams
Skoraði 2 og var virkilega öflugur í dag. Valið stór á milli hans og Joey Gibbs sem var einnig frábær.
Atvikið
Fyrirgjöfin hans Adams Ægis Pálssonar var alvöru konfekt í fyrra marki Kian Williams. Keflvíkingar byrjuðu yfirtökuna þar.
Hvað þýða úrslitin?
Því miður fyrir Keflvíkinga féllu önnur úrslit ekki með þeim til að tryggja sæti í efri hluta.
Liðin enda því í 7. og 8.sæti fyrir skiptinguna.
Vondur dagur
Ólafur Íshólm Ólafsson þurfti að sækja boltann 8 sinnum úr markinu sem getur ekki talist spes. Fékk kannski ekki þá hjálp frá varnarmönnum sínum sem hann átti skilið svo það má kannski bara setja varnarleikur Fram í heild hér hafi átt slæman dag.
Dómarinn - 8
Virkilega vel dæmdur leikur. Leyfði leiknum að fljóta var ekkert að skemma stemninguna með einhverjum glórulausum dómum.




