Fotbolti.net
Besta deildin
@kjartanleifursKjartan Leifur Sigurðsson
Kjartan Leifur Sigurðsson
Besta-deild karla - 22. umferð
Samsungvöllurinn
Venjulegur haustadagur í Garðabæ
Stjarnan
Stjarnan
2 - 1
FH
FH
Ísak Andri Sigurgeirsson 4'1 - 01 - 120' Kristinn Freyr SigurðssonÍsak Andri Sigurgeirsson 40'2 - 1
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson

SKÝRSLAN: FH þakkar æðri mætti fyrir tilkomu úrslitakeppninnar

Hvað réði úrslitum?

Leikurinn var nokkuð jafn. FH stjórnaði honum að miklu leiti en skapaði sér ekkert frábær færi. Stjarnan fékk líklega betri færi þrátt fyrir að halda minna í boltann. Það skilaði sigrinum.

Bestu leikmenn

1. Ísak Andri Sigurgeirsson

Flottur leikmaður sem er óhræddur að keyra á varnir andstæðinganna. Skoraði tvö mörk í dag og tryggði sigurinn.

2. Kristinn Freyr Sigurðsson

Skoraði gott mark með skalla og var síógnandi með fyrirgjöfum sínum úr föstum leikatriðum. Besti leikmaður FH í dag.

Atvikið

Matthías Vilhjálmsson fékk gullið tækifæri til að jafna leikinn en brást bogalistinn með skalla sínum. Þarna þarf hann að skora.

Hvað þýða úrslitin?

FH þakka guði fyrir tvískiptinguna. Þeir sitja í fallsæti ásamt Skagamönnum. Stjarnan þurfti að sækja úrslit í dag til að tryggja sæti sitt í efri hlutanum og gerði það.

Vondur dagur

Matthías Vilhjálmsson átti ekki sinn besta leik í dag. Spilaði aftar en vanalega og átt í erfiðleikum auk þess klúðraði hann dauðafæri í leiknum.

Dómarinn - 8

Ekkert út á hann að setja. Fannst hann ná að halda tempói nokkuð vel og komst vel frá sínu verki
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.