Fotbolti.net
@fotboltinetLogi Freyr Gissurarson
Lengjudeild karla
JÁVERK-völlurinn
Frábærar aðstæður.
Selfoss
Selfoss
2 - 0
KV
KV
Jökull Hermannsson 56'1 - 0Gonzalo Zamorano Leon 80'2 - 0
Dómari: Elías Ingi Árnason

SKÝRSLAN: Selfoss vinnur sinn síðasta leik á tímabilinu

Hvað réði úrslitum?

Lítið að gerast í fyrri hálfleik en fjörugari seinni hálfleikur þar sem Selfoss hafði betur en leikurinn hefði geta farið í aðra hvora áttina.

Bestu leikmenn

1. Stefán Þór Ágústson.

Þurfti að verja nokkru sinnum og gerði það sem hann þurfti að gera og átti nokkrar frábærar spyrnur í leiknum.

2. Jökull Hermannsson.

Var góður í vörn Selfoss og skoraði síðan eitt mark sem kom Selfoss á bragðið.

Atvikið

Þarf að setja það á Reyni Frey sem setur upp fyrsta markið í fyrstu snertingu sinni eftir að hafa verið inná í sirka 30 sek.

Hvað þýða úrslitin?

Selfoss endar í 6. sæti eftir frábæra byrjun en KV endar í því ellefta og fellur því um deild.

Vondur dagur

Vondur dagur fyrir KV að enda síðasta leikinn sinn í Legnjudeildinni svona en spiluðu svo sem ágætan leik.

Dómarinn - 7,5/10

Lítið hægt að setja út á dómgæsluna.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.