Fotbolti.net
Besta deildin
@karisnorraKári Snorrason
Kári Snorrason
Besta-deild karla - 22. umferð
Norðurálsvöllurinn
Flórídaskaginn stendur undir nafni
ÍA
ÍA
1 - 2
Leiknir R.
Leiknir R.
Eyþór Aron Wöhler 40'1 - 01 - 155' Tobias Kirstrup Stagaard (sjm)1 - 288' Viktor Jónsson (sjm)
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

SKÝRSLAN: Skagamenn skoruðu mörkin en töpuðu þó

Hvað réði úrslitum?

Leikurinn var frekar lokaður framan af. Eftir mark Eyþórs Wöhler gáfu Leiknir í og náðu stjórn á leiknum. ÍA gaf Leikni nóg af föstum leikatriðum og fengu Breiðhyltingar um 14 horn í leiknum. Bæði mörk Leiknis voru sjálfsmörk frá leikmönnum ÍA sem komu úr föstum leikatriðum.

Bestu leikmenn

1. Birgir Baldvinsson

Birgir var mjög sprækur í dag, kom mikið upp á völlinn og átti hörkuskot sem hafnaði í þverslánni.

2. Davíð Júlían Jónsson

Davíð átti mjög góðan leik á miðjunni í dag. Óhræddur við að keyra á vörn Skagamanna.

Atvikið

Annað sjálfsmark ÍA kom á 88. mínútu leiksins og var það Viktor Jónsson sem varð fyrir því óláni. Sjaldséð að sama liðið skori öll mörk leiksins en tapi þó. Markið var þannig að Leiknir fær hornspyrnu en enginn kemur við boltann. Boltinn dettur fyrir Viktor Jónsson sem er rétt fyrir framan markið og hann setur boltann óheppilega í sitt eigið net.

Hvað þýða úrslitin?

Leiknir er komið úr fallsæti og eru jafnir ÍBV sem er í 9. sæti á stigum. Útlitið er ekki bjart fyrir Skagamenn sem eru í botnsæti deildarinnar og 5 stigum frá öruggu sæti.

Vondur dagur

Þeir Tobias Stagaard og Viktor Jónsson urðu fyrir því óláni að setja boltann í sitt eigið net. Þetta er ekki dagur sem þeir vilja sérstaklega muna eftir.

Dómarinn - 9

Vilhjálmur frábær í dag að mínu mati, ekkert hægt að setja út á hann.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.