Fotbolti.net
Besta deildin
@gummi_aaGuðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Besta-deild kvenna
Hásteinsvöllur
ÍBV
ÍBV
0 - 3
Valur
Valur
0 - 131' Elín Metta Jensen 0 - 242' Þórdís Elva Ágústsdóttir0 - 356' Mist Edvardsdóttir
Dómari: Jakub Marcin Róg

SKÝRSLAN: Valskonur geta orðið sófameistarar á morgun

Hvað réði úrslitum?

Valskonur bara miklu betra fótboltaliðið á þessum degi. Heimaliðið ætlaði að múra fyrir en þegar sá múr var brotinn þá var þetta aldrei nokkurn tímann spurning.

Bestu leikmenn

1. Þórdís Elva Ágústsdóttir (Valur)

Kom virkilega sterk inn á miðsvæðið og skoraði gott mark. Skilaði góðu dagsverki.

2. Mist Edvardsdóttir (Valur)

Fékk á sig vítaspyrnu en það var vafasamur dómur. Heilt yfir mjög sterkur leikur hjá Mist þar sem henni tókst meðal annars að koma boltanum í netið.

Atvikið

Fyrsta markið. Líkt og fyrr segir þá var þetta aldrei spurning eftir að það datt.

Hvað þýða úrslitin?

Valur er með níu og hálfan fingur á bikarnum. Ef Breiðablik vinnur ekki gegn Aftureldingu á morgun þá verður Valur sófameistari. Ef Blikar vinna - eins og búist er við - þá dugir Valskonum eitt stig gegn Aftureldingu næsta laugardag til að tryggja sér titilinn. ÍBV siglir lygnan sjó.

Vondur dagur

Guðný í marki ÍBV leit klaufalega út í fyrsta markinu en annars er ekkert við hana að sakast í hinum tveimur mörkunum. Varnarlínan var ekkert sérlega sannfærandi eftir því sem tók að líða á leikinn. Eyjaliðið sem heild átti alls ekki góðan dag og gestirnir voru talsvert betri.

Dómarinn - 5,5

Ég var ekki sammála vítadómnum, mér fann það lítið frá því sjónarhorni sem ég sá. Annars allt í lagi leikur hjá Jakup og teymi hans.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.