Vinicius Jr orðaður við Man City - Bayern vill Gordon - Arsenal, Liverpool og Barcelona hafa áhuga á Barcola
Í BEINNI
Besta karla
Víkingur R.
17:30 0
0
Þór
Fram
0
0
Valur
08.05.2026  -  19:15
Lambhagavöllurinn
Besta karla
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Verið að græja alvöru stemningu hjá Fram í kvöld!

Fyrir leik
Valur Valur kemur í þennan slag á öðrum nótum, þeir áttu stórskemmtilegan leik gegn KR í síðustu umferð sem endaði með 4-1 KR sigri. Eina mark Vals skoraði Dagur Orri Garðars á 90mín.
Markmannsþjálfari Vals Emil Alexander Larsen fékk að líta rauða spjaldið í hálfleik gegn KR.

Valsmenn eru hinsvegar á fínasta stað í töflunni og það er mikið til að berjast um hér í kvöld. Valur situr nefninlega í 5.sæti aðeins einu stigi eftir mótherja kvöldsins.
Þrír sigrar og tvö töp skila 9 stigum á töfluna. Eini útileikur þeirra af því sem er búið var 2-4 sigur á Stjörnunni í þar síðustu umferð.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Fram Í síðasta leik Frams var heldur betur sóttur góður sigur á FH í Kaplakrikanum. Þeir komu til baka úr 3-1 stöðu í hálfleik og sóttu stigin þrjú með 3-4 sigri þar sem Kennie Chopart setti 2 síðustu mörk leiksins. Þorri Þorbjörnsson og Ægir Jarl skoruðu báðir eitt.

Það er ekki við öðru að búast en að Fram liðið sé nokkuð bratt eftir fínustu byrjun á mótinu.
Þeir sitja í 4.sæti fyrir þessa umferð með 10 stig úr þrem sigrum, einu jafntefli og einu tapi.
Ennþá taplausir hér á Lambhagavellinum og það er eflaust eitthvað sem menn vilja halda í.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Leikmanna glugginn lokaður Framarar
Komnir
Ægir Jarl Jónasson frá Danmörku
Atli Þór Jónasson frá Víkingi á láni
Sigurjón Daði Harðarson frá Fjölni
Bjarni Páll Linnet Runólfsson frá Aftureldingu
Sigfús Árni Guðmundsson frá Þrótti (var á láni)

Farnir
Tryggvi Snær Geirsson í Þrótt R
Alex Freyr Elísson í Njarðvík og svo NSÍ Runavík
Bjarki Arnaldarson í KFG (var á láni frá Leikni)
Guðmundur Magnússon í Njarðvík (var á láni hjá Breiðabliki)

Vals-liðið
Komnir
Samúel Kári Friðjónsson frá Stjörnunni
Ingimar Torbjörnsson Stöle frá KA
Dagur Orri Garðarsson frá HK
Kristófer Dagur Arnarsson frá Fjölni
Myles Veldman frá Litháen

Farnir
Sigurður Egill Lárusson í Þrótt R.
Daði Kárason í Víking Ó. (var á láni hjá Selfossi)
Marius Lundemo til Noregs
Stefán Gísli Stefánsson í Njarðvík á láni
Sveinn Sigurður Jóhannesson í Stjörnuna
Mattías Kjeld í Gróttu
Andi Hoti í Aftureldingu á láni

Fyrir leik
Spámaður 6.umferðar Júlíus Mar Júlíusson var fenginn til að spá fyrir úrslitum í þessari umferð.

Fram 2 - 2 Valur (19:15 í kvöld)
Stál í stál dæmi. Nammi leikur á Lambhagavelli þar sem bæði lið sækja til sigurs. Ægir Jarl brýtur ísinn fyrir Framara en Ólafur Flóki jafnar leikinn með skalla. Adam Páls kemur síðan Völsurum yfir og heldur að hann sé búinn að tryggja þeim sigur en Íslenski Fadearinn (Arnar Daníel) er ekki á sama máli og jafnar leikinn með hjólhestaspyrnu í uppbótartíma og allt tryllist.

Fyrir leik
Dómarateymið Í þessum leik er Helgi Mikael Jónasson á flautunni.

Aðstoðardómari 1 og 2 eru Þórður Arnar Árnason og Tomasz Piotr Zietal.

Fjórði dómari er Róbert Þór Guðmundsson og Dómaraeftirlitsmaður
er Gunnar Helgason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Föstudags Fótbolti! Verið velkomin kæru lesendur. Það er nógu um að vera í kvöld og hér verður leik Fram og Vals textalýst í þráð beinni frá Lambhagavellinum.

6.umferðin fer í gang með heilum 5 leikjum í kvöld!

Leiknum verður sparkað af stað 19:15
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld: