Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25102 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR20.10.2025, 14:05

Dóri Árna rekinn (Staðfest) - Ólafur Ingi tekinn við

Breiðablik tilkynnti rétt í þessu þau tíðindi, sem Fótbolti.net sagði frá fyrr í dag, að félagið væri búið að ganga frá starfslokum við Halldór Árnason. Hann var þjálfari meistaraflokks karla hjá félaginu, var á sínu öðru tímabili með liðið. Hann kom fyrst til félagsins árið 2019 og var fyrstu árin aðstoðarþjálfari Óskars Hrafns Þorvaldssonar. Á síðasta tímabili gerði hann Breiðablik að Íslandsmeisturum. „Á þessum sex árum hefur Halldór verið risastór hluti af velgengni og uppgangi félagsins. Undir hans stjórn varð félagið Íslandsmeistari 2024 og tryggði sér þátttöku í Sambandsdeild Evrópu 2025," segir í tilkynningunni. Þar segir einnig að Ólafur Ingi Skúlason hafi verið ráðinn þjálfari liðsins. Ólafur Ingi er fyrrum atvinnu- og landsliðsmaður sem þjálfaði U21 ára landsliðið í eitt og hálft ár og var þar á undan með U19. Ekki er greint frá því hversu langur samningur Ólafs er. Fyrsti leikur Ólafs sem þjálfari Breiðabliks verður líklega gegn finnska liðinu KuPS á fimmtudag í Sambandsdeildinni.

FRÉTTIR20.10.2025, 09:15

Potter reynir að koma Svíum á HM (Staðfest)

Graham Potter hefur verið kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Svíþjóðar. Hann skrifaði undir stuttan samning og mun reyna að rétta liðið við og vonast eftir því að komast á HM 2026. Svíþjóð á ekki lengur möguleika á að vinna sinn riðil í undankeppninni en gæti samt komist á HM þrátt fyrir að ná ekki öðru sætinu. Svíþjóð gæti komist í umspil vegna árangurs síns í Þjóðadeildinni þar sem liðið vann sinn riðil.

FRÉTTIR19.10.2025, 12:09

Sonja Björg í Val (Staðfest)

Sonja Björg Sigurðardóttir er gengin í raðir Vals frá Þór/KA en þetta kemur fram í tilkynningu frá Val í dag.

FRÉTTIR17.10.2025, 16:00

Þrír leikmenn ekki áfram á Akureyri (Staðfest)

Þór/KA greindi frá því í dag að þrír leikmenn yrðu ekki áfram hjá félaginu. Báðir erlendu leikmenn liðsins, Ellie Moreno og Jessica Berlin, verða ekki áfram hjá félaginu. Jessica er markvörður sem stóð vaktina í sumar og Ellie er sóknarsinnaður leikmaður sem skoraði eitt mark á tímabilinu. Þá snýr Henríetta Ágústsdóttir, lánsmaður Stjörnunnar, aftur í Garðabæinn.

FRÉTTIR16.10.2025, 19:50

Ray Anthony ráðinn þjálfari Grindavíkur (Staðfest)

Ray Anthony Jónsson hefur verið ráðinn þjálfari Grindavíkur. Hann skrifar undir tveggja ára samning. Hann tekur við af Antoni Inga Rúnarssyni og Marko Valdimar Stefánssyni sem stýrðu liðinu síðustu tvo leiki sumarsins og tókst að forðast fall með góðum sigri gegn ÍR. Anton Ingi og Marko Valdimar voru fengnir inn til þess að taka við af Haraldi Árna Hróðmarssyni sem var rekinn undir lok deildartímabilsins eftir óviðunandi árangur að mati stjórnar. Marko Valdimar verður aðstoðarþjálfari og Milan Stefán Jankovic, pabbi Marko, verður einnig í teyminu. Ray Anthony spilaði með Grindavik frá 1998 til 2012. Hann spilaði tvo landsleiki fyrir U21 landslið Íslands og einn A-landsleik fyrir hönd Filippseyja. Hann þjálfaði kvennalið Grindavíkur frá 2017-2020 og Reyni Sandgerði frá 2022 en liðið hafnaði í 5. sæti 3. deildarinnar síðasta sumar.

FRÉTTIR16.10.2025, 17:41

Slúðrið reyndist rétt - Jóhann tekur við Þrótti (Staðfest)

Jóhann Kristinn Gunnarsson hefur verið ráðinn þjálfari Þróttar í Bestu deild kvenna. Þessar fréttir koma ekki á óvart en Fótbolti.net greindi frá því fyrir viku að líkur væru á að þetta myndi gerast. Sá fréttaflutningur fór eitthvað í taugarnar á Jóhanni sem sagði í viðtali: „Ég veit ekki hvort maður eigi að kalla það frétt eða ábendingu um slúður á .net eins og kom í morgun um að ég væri mögulega að fara í Þrótt." En slúðrið reyndist rétt og hann hefur nú verið kynntur hjá Þrótti en á miðvikudag var tilkynnt að hann væri hættur hjá Þór KA.

FRÉTTIR15.10.2025, 18:38

Jóhann Kristinn hættur með Þór/KA (Staðfest)

Jóhann Kristinn Gunnarsson er hættur sem þjálfari Þórs/KA en þetta kemur fram í tilkynningu félagsins í kvöld. Jóhann Kristinn stýrði liðinu í átta tímabil. Hann tók fimm tímabil frá 2012 til 2016 þar sem liðið varð meðal annars Íslandsmeistari og komst í bikarúrslit.

FRÉTTIR15.10.2025, 17:48

De Jong framlengir við Barcelona (Staðfest)

Hollenski miðjumaðurinn Frenkie de Jong hefur framlengt samning sinn við Spánarmeistara Barcelona til 2029. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Börsungum í dag.

FRÉTTIR15.10.2025, 13:38

Viðar Örn yfirgefur KA eftir tímabilið (Staðfest)

Viðar Örn Kjartansson mun yfirgefa KA þegar tímabilinu í Bestu deildinni lýkur. Þetta staðfestir hann í samtali við Fótbolta.net.

Þau tíðindi koma ekki mjög á óvart, hann hefur verið í takmörkuðu hlutverki á tímabilinu og samningur hans að renna út.

Hann var ekki í leikmannahópi KA í síðasta leik og tveir leikir eru eftir af tímabilinu.

Viðar er 35 ára framherji sem er að ljúka sínu öðru tímabili hjá KA eftir að hafa þar á undan verið í áratug erlendis sem atvinnumaður.

FRÉTTIR14.10.2025, 22:30

Potter hefur áhuga á sænska landsliðinu

Fotbollskanalen í Svíþjóð ræddi við Graham Potter um möguleika þess að hann taki við sænska landsliðinu eftir brottrekstur Jon Dahl Tomasson á dögunum.

FRÉTTIR13.10.2025, 09:50

Luton búið að kynna Wilshere (Staðfest)

Hinn 33 ára gamli Jack Wilshere er orðinn stjóri Luton Town en félagið tilkynnti það í morgun. Hann tekur við af Matt Bloomfield sem var rekinn eftir innan við ár í starfi. Luton var í úrvalsdeildinni en hefur fallið niður um tvær deildir á tveimur árum og er nú í ellefta sæti C-deildarinnar.

FRÉTTIR11.10.2025, 14:30

Ísak og Patrekur Orri taka við Aftureldingu (Staðfest)

Knattspyrnudeild Aftureldingar tilkynnti í dag nýtt og spennandi þjálfarateymi hjá meistaraflokki kvenna en Ísak Ólason verður aðalþjálfari liðsins og mun Patrekur Orri Guðjónsson vera honum til aðstoðar.

FRÉTTIR10.10.2025, 09:17

Haddi framlengdi við KA (Staðfest) - „Breytingar verða á liðinu“

„Það eru spennandi tímar framundan hjá okkur KA-mönnum en ljóst er að breytingar verða á liðinu okkar og treystum við Hadda fullkomlega til að leiða félagið í þeirri vegferð," segir í tilkynningu KA. Þar er tilkynnt um nýjan tveggja ára samning KA við þjálfarann Hallgrím Jónasson. Hann hefur stýrt KA sem aðalþjálfari síðan í lok sumars 2022. Á síðasta ári stýrði hann liðinu til sigurs í Mjólkurbikarnum. KA er sem stendur í áttunda sæti Bestu deildarinnar.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.