FRÉTTIR05.06.2026, 16:00
Ítalska félagið Inter hefur nýtt sér ákvæði um að kaupa Aleksandar Stankovic aftur til félagsins fyrir 23 milljónir evra.
Stankovic er miðjumaður sem fæddist 2005 og hefur skrifað undir samning við Inter til 2030.
FRÉTTIR05.06.2026, 12:37
Tottenham tilkynnti í dag Andy Robertson sem nýjan leikmann félagsins. Hann verður formlega leikmaður félagsins 1. júlí. Í myndbandi Tottenham býður Michael Dawson, fyrrum fyrirliði Tottenham og bæði liðsfélagi og fyrirliði Robertson hjá Hull, hann velkominn til félagsins.
Robertson, sem er 32 ára vinstri bakvörður, kemur frá Liverpool á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Bítlaborgarfélagið rann út.
Robertson var í níu ár hjá Liverpool en hann var fenginn frá Hull. Hann var lykilmaður í liðinu sem vann ensku úrvalsdeildina tvisvar og Meistaradeildina. Alls vann hann níu titla með Liverpool.
FRÉTTIR05.06.2026, 11:34
Southampton hefur keypt markvörðinn Daniel Peretz frá Bayern München. Ísraelinn var á láni hjá Southampton seinni hluta tímabilsins og stóð sig mjög vel.
Talið er að Southampton greiði um 7,5 milljónir evra fyrir Peretz sem verður 26 ára eftir rúman mánuð.
Hann er uppalinn hjá Maccabi Tel Aviv og á að baki tólf A-landsleiki. Hann fór til Bayern árið 2023 og kom við sögu í sjö keppnisleikjum með Bæjurum.
FRÉTTIR05.06.2026, 10:41
Sara Björk Gunnarsdóttir er gengin í raðir uppeldisfélagsins Hauka eftir átján ára fjarveru. Haukar tilkynntu um komu hennar heim í Hafnarfjörðinn á samfélagsmiðlum sínum - myndbandið má sjá neðst í fréttinni og í lok þess sést að Sara verður í treyju númer 77 hjá Haukum. Haukar munu svo klukkan 15:00 halda fréttamannafund í knatthúsi sínu.
Hún snýr til Hauka eftir að hafa spilað með Breiðabliki, Rosengård, Wolfsburg, Lyon, Juventus og síðast Al Qadsiah í Sádi-Arabíu.
Sara Björk (1990) er fyrrum landsliðsfyrirliði og næst leikjahæsti leikmaður í sögu landsliðsins með 145 leiki. Hún fór með Íslandi á EM 2009, 2013, 2017 og 2022.
Hún vann Meistaradeild Evrópu bæði sem leikmaður Wolfsburg og Lyon. Hún varð sænskur meistari fjórum sinnum, þýskur meistari fjórum sinnum og einu sinni franskur meistari. Hún vann fjóra bikartitla í Þýskalandi, einn bikartitil í Svíþjóð, einn bikartitil í Frakklandi og árið 2023 varð hún bikarmeistari með Juventus á Ítalíu.
Haukar eru í toppsæti Lengjudeildarinnar með fullt hús eftir fimm leiki. Félagaskiptaglugginn opnar 16. júlí.
FRÉTTIR04.06.2026, 20:30
Portúgalska stórveldið Benfica hefur staðfest að José Mourinho mun ganga til liðs við Real Madrid ef Florentino Pérez verður endurkjörinn forseti um helgina.
FRÉTTIR04.06.2026, 18:56
Andoni Iraola er búinn að gera tveggja ára samning við Liverpool. Hann tekur við af Arne Slot eftir mikið vonbrigðatímabil í kjölfar Englandsmeistaratitils í fyrra.
FRÉTTIR04.06.2026, 18:37
Spánverjinn Andoni Iraola hefur verið kynntur sem nýr stjóri hjá Liverpool.
FRÉTTIR04.06.2026, 14:36
Tom Heaton hefur framlengt samning sinn við Manchester United um eitt ár.
Heaton er þriðji markvörður félagsins og hefur ekki spilað keppnisleik fyrir Man Utd í meira en þrjú ár.
Hann er 40 ára gamall og er sagður vera einn þeirra leikmanna sem hafa hvað mest jákvæð áhrif á æfingasvæðinu og er því verðlaunaður með nýjum samningi.
Heaton hefur aðeins spilað þrjá keppnisleiki á síðustu fimm árum hjá United án þess að fá mark á sig.
FRÉTTIR04.06.2026, 11:54
Daninn Kasper Hjulmand hefur verið rekinn frá Bayer Leverkusen eftir að honum mistókst að koma liðinu í Meistaradeildina.
Hjulmand tók við liðinu í upphafi tímabils eftir að Erik ten Hag var látinn fara eftir einungis tvo leiki með liðið.
Liðið hafnaði í 6. sæti í Bundesliga, þremur stigum á eftir Meistaradeildarsæti.
FRÉTTIR04.06.2026, 06:43
Hinn 37 ára gamli Enrique Riquelme er í baráttu um að verða forseti Real Madrid og lét stór orð falla í gær.
FRÉTTIR04.06.2026, 06:34
Hinn 37 ára gamli Enrique Riquelme ætlar að reyna að steypa Florentino Pérez forseta Real Madrid af stóli eftir sautján ára dvöl hans í forsetastólnum.
FRÉTTIR03.06.2026, 21:30
Þýska stórveldið RB Leipzig er í viðræðum við Brighton um að lengja lánsdvöl Brajan Gruda hjá félaginu.
FRÉTTIR03.06.2026, 20:33
Forsetakosningar Real Madrid fara fram um helgina og er Florentino Pérez tilbúinn með nokkra nýja leikmenn og nýjan þjálfara sem verða kynntir til leiks ef hann nær endurkjöri.
FRÉTTIR03.06.2026, 20:00
Bruno Génésio verður næsti aðalþjálfari sögufræga liðsins Olympique Marseille eftir að Roberto De Zerbi hætti í febrúar.
FRÉTTIR03.06.2026, 19:18
Serbneski framherjinn Dusan Vlahovic er falur á frjálsri sölu í sumar eftir að honum tókst ekki að semja við Juventus um nýjan samning.
FRÉTTIR03.06.2026, 17:55
Vladimir Tufegdzic hefur verið ráðinn aðalþjálfari Harðar á Ísafirði sem leikur í 5. deild og er án stiga eftir þrjár fyrstu umferðir deildartímabilsins.
FRÉTTIR03.06.2026, 16:51
ÍBV og Filip Stuparevic hafa náð samkomulagi um riftun á samningi Serbans við félagið.
Þetta staðfestir Magnús Sigurðsson sem er formaður fótboltadeildar ÍBV í samtali við Fótbolta.net.
Filip hafði ekki verið í leikmannahópi ÍBV í síðustu tveimur leikjum. Sömu sögu er að segja af Milan Jezdimirovic en hann er áfram leikmaður ÍBV. Magnús segir það hafa verið ákvörðun þjálfarans að hafa þá utan hóps.
FRÉTTIR03.06.2026, 11:06
Rasmus Hojlund hefur gengið varanlega til liðs við Napoli frá Manchester United. Hann skrifar undir samning til ársins 2030.
Daninn lék með ítalska félaginu á láni á síðasta tímabili og var Napoli með kaupákvæði í samningnum upp á 38 milljónir punda og virkjaði félagið þá klásúlu.
Framherjinn skoraði sextán mörk í 44 leikjum fyrir Napoli á tímabilinu.
Man Utd keypti Hojlund frá Atalanta sumarið 2023 og nam kaupverðið um 64 milljónum punda. Alls lék hann 95 leiki fyrir félagið í öllum keppnum og skoraði 25 mörk.
FRÉTTIR03.06.2026, 07:45
Hollenska stórveldið Ajax er búið að kynna Spánverjann Míchel til leiks sem næsta stjóra félagsins.
FRÉTTIR03.06.2026, 06:00
Sindri er búinn að krækja í tvo Ganverja úr röðum KR en þeir komu til Íslands sem hluti af samstarfi félagsins við <i>Field Masters</i> akademíuna í Gana.