Milan, Tottenham og Villa hafa áhuga á Summerville - Atletico Madrid horfir til Reijnders - Everton hefur áhuga á Jesus
   fim 04. júní 2026 20:30
Ívan Guðjón Baldursson
Benfica fær 15 milljónir fyrir Mourinho
Mynd: EPA
Portúgalska stórveldið Benfica hefur staðfest að José Mourinho mun ganga til liðs við Real Madrid ef Florentino Pérez verður endurkjörinn forseti um helgina.

Real Madrid þarf að greiða 15 milljónir evra til að leysa Mourinho undan samningi sínum hjá Benfica en hann fór í gegnum fyrsta tímabilið sitt við stjórnvölinn án þess að tapa einum einasta deildarleik. Benfica endaði þó í þriðja sæti og missti af Meistaradeildinni.

63 ára gamall Mourinho er með eitt ár eftir af samningi sínum við Benfica.

Hann er að taka við Real Madrid í annað sinn á ferlinum eftir að hafa verið við stjórnvölinn frá 2010 til 2013. Hann hefur haldið góðu vinasambandi við Florentino Pérez forseta síðan þá.

   03.06.2026 20:33
Mourinho tekur við ef Pérez vinnur (Staðfest)

Slapp
banner