Southampton hefur keypt markvörðinn Daniel Peretz frá Bayern München. Ísraelinn var á láni hjá Southampton seinni hluta tímabilsins og stóð sig mjög vel.
Talið er að Southampton greiði um 7,5 milljónir evra fyrir Peretz sem verður 26 ára eftir rúman mánuð.
Hann er uppalinn hjá Maccabi Tel Aviv og á að baki tólf A-landsleiki. Hann fór til Bayern árið 2023 og kom við sögu í sjö keppnisleikjum með Bæjurum.

Peretz skrifar undir fjögurra ára samning á St. Mary's.
„Ég er mjög spenntur. Þetta hefur verið heimili mitt síðustu mánuði og við upplifðum góða tíma, en líka stressandi tíma. En á síðustu vikum höfum við staðið þétt saman og manni leið eins og heima hjá sér."
„Það skipti mig öllu máli. Það er draumur minn að spila í úrvalsdeildinni, á stærsta sviðinu í heiminum, en stærri draumur er að vera þar með Southampton. Ég hef trú á því að við getum komist þangað," segir Peretz.