Andoni Iraola er búinn að gera tveggja ára samning við Liverpool. Hann tekur við af Arne Slot eftir mikið vonbrigðatímabil í kjölfar Englandsmeistaratitils í fyrra.
Richard Hughes, yfirmaður íþróttamála hjá Liverpool, er maðurinn á bakvið ráðninguna á Iraola. Hann hefur miklar mætur á Spánverjanum og var einnig maðurinn sem réði hann til Bournemouth á sínum tíma.
Hughes fór frá Bournemouth til Liverpool ári eftir ráðninguna á Iraola og tókst að ráða hann í annað sinn.
„Ég er virkilega, virkilega spenntur. Allir vita hversu risastórt félag Liverpool er. Þetta er eitt af allra stærstu félagsliðum heims," sagði Iraola við undirskriftina á samningi.
„Ég hef alltaf vitað að þetta er sérstakt félag og tilfinningin er ótrúleg að vera kominn hingað. Það þarf ekki mikið til að sannfæra hvaða þjálfara sem er til að taka við Liverpool. Þetta er Liverpool sem við erum að tala um.
„Stemningin hérna á Anfield er helsta aðalsmerki félagsins og ég er ótrúlega spenntur. Hér fæ ég tækifæri til að þjálfa leikmenn í heimsklassa og að berjast um stærstu titla sem eru í boði. Þetta er eins gott og það gerist, þetta er eitt af allra stærstu þjálfarastörfum sem eru í boði í fótboltaheiminum. Það er mjög erfitt að komast á þetta stig og ég get ekki beðið eftir að hefja störf."
04.06.2026 18:37
Iraola búinn að skrifa undir (Staðfest)



