Fotbolti.net
03.06.26 - 16:51
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Samningi Filip Stuparevic við ÍBV rift (Staðfest)

Filip Stuparevic (í hvítu) eltir Bjarna Mark í leik ÍBV og Vals.

Filip Stuparevic (í hvítu) eltir Bjarna Mark í leik ÍBV og Vals.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV og Filip Stuparevic hafa náð samkomulagi um riftun á samningi Serbans við félagið.

Þetta staðfestir Magnús Sigurðsson sem er formaður fótboltadeildar ÍBV í samtali við Fótbolta.net.

Filip hafði ekki verið í leikmannahópi ÍBV í síðustu tveimur leikjum. Sömu sögu er að segja af Milan Jezdimirovic en hann er áfram leikmaður ÍBV. Magnús segir það hafa verið ákvörðun þjálfarans að hafa þá utan hóps.
Skilja ekki af hverju hann er að spila hjá ÍBV
TENGT EFNI

Skilja ekki af hverju hann er að spila hjá ÍBV

Stuparevic er 25 ára og var á sínum tíma yngsti leikmaður í sögu serbnesku úrvalsdeildarinnar. Áður en hann samdi við ÍBV hafði hann ekki spilað í rúmt ár vegna meiðsla.

ÍBV vann á sunnudag sinn fyrsta leik í sumar og næsti leikur verður gegn Þór þar sem liðin í 10. og 11. sæti deildarinnar mætast.
Var hjá Motherwell áður en hann hélt til Vestmannaeyja.

Var hjá Motherwell áður en hann hélt til Vestmannaeyja.

Canon

Mynd: Motherwell

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.15+3840
2KR16+2235
3Fram15+1333
4Breiðablik14+825
5Valur16-619
6Keflavík14-716
7ÍBV14-715
8Stjarnan15-815
9ÍA14-915
10KA14-813
11FH14-1111
12Þór15-2511
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.