Man Utd gæti keypt Kalulu - Iraola gerir tveggja ára samning við Liverpool - Villa vill ekki missa Rogers
banner
   mið 03. júní 2026 11:06
Kári Snorrason
Napoli kaupir Höjlund (Staðfest)
Mynd: EPA
Rasmus Hojlund hefur gengið varanlega til liðs við Napoli frá Manchester United. Hann skrifar undir samning til ársins 2030.

Daninn lék með ítalska félaginu á láni á síðasta tímabili og var Napoli með kaupákvæði í samningnum upp á 38 milljónir punda og virkjaði félagið þá klásúlu.

Framherjinn skoraði sextán mörk í 44 leikjum fyrir Napoli á tímabilinu.

Man Utd keypti Hojlund frá Atalanta sumarið 2023 og nam kaupverðið um 64 milljónum punda. Alls lék hann 95 leiki fyrir félagið í öllum keppnum og skoraði 25 mörk.



Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner