Spánverjinn Andoni Iraola hefur verið kynntur sem nýr stjóri hjá Liverpool.
Iraola tekur við stórveldinu eftir magnaðan árangur á þriggja ára dvöl í Bournemouth.
Iraola er 43 ára gamall og hefur áður stýrt Rayo Vallecano, Mirandés og AEK Larnaca á þjálfaraferlinum.
Hann lék fyrir Athletic Bilbao sem leikmaður og á sjö landsleiki að baki fyrir Spán. Hann er æskuvinur Mikel Arteta þjálfara Arsenal sem tryggði liðinu langþráðan Englandsmeistaratitil á tímabilinu.
Iraola tekur við Liverpool eftir að Arne Slot var rekinn í kjölfar mikils vonbrigðatímabils. Liverpool vann Englandsmeistaratitilinn í fyrra og er pressan á Iraola mikil.
04.06.2026 12:07
Iraola lentur í Liverpool - „Besti kosturinn að fá hann inn“




