Man Utd gæti keypt Kalulu - Iraola gerir tveggja ára samning við Liverpool - Villa vill ekki missa Rogers
banner
   mið 03. júní 2026 20:00
Ívan Guðjón Baldursson
Fráfarandi þjálfari Hákonar tekur við Marseille
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Bruno Génésio verður næsti aðalþjálfari sögufræga liðsins Olympique Marseille eftir að Roberto De Zerbi hætti í febrúar.

Génésio er fráfarandi þjálfari Hákonar Arnars Haraldssonar og félaga í Lille þar sem hann hefur verið í tvö ár. Samningur hans við félagið rennur út í sumar og ákvað Lille að ráða Davide Ancelotti í starfið hjá sér á dögunum.

   24.01.2026 11:18
Þjálfari Hákonar ætlar ekki að segja upp störfum


Génésio gerir tveggja ára samning við Marseille með möguleika á auka ári, en liðið endaði í fimmta sæti frönsku deildarinnar og leikur því í deildarkeppni Evrópudeildarinnar á næstu leiktíð.

Marseille endaði með 59 stig úr 34 umferðum, tveimur stigum minna en Lille sem mun leika í Meistaradeildinni komandi haust.

   01.06.2026 12:00
Sonur Ancelotti tekur við Lille (Staðfest)


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp