Man Utd gæti keypt Kalulu - Iraola gerir tveggja ára samning við Liverpool - Villa vill ekki missa Rogers
banner
   mið 03. júní 2026 19:18
Ívan Guðjón Baldursson
Vlahovic falur á frjálsri sölu (Staðfest)
Mynd: EPA
Serbneski framherjinn Dusan Vlahovic er falur á frjálsri sölu í sumar eftir að honum tókst ekki að semja við Juventus um nýjan samning.

Vlahovic er 26 ára gamall og skoraði 10 mörk í 23 leikjum í öllum keppnum á meiðslahrjáðu tímabili.

Hann skoraði 68 mörk í 168 leikjum á fjóru og hálfu ári með Juve og vakti áhuga á sér víðsvegar úr Evrópu á þeim tíma. Hann hefur verið orðaður við ýmis stórlið á síðustu misserum, einna helst Barcelona, FC Bayern, Chelsea og Newcastle.

„Ég er sorgmæddur. Ég vildi halda Dusan útaf því að félagið okkar skiptir hann máli, en hann vill hærri laun. Ef hann lækkar ekki launakröfurnar þá er ekkert félag á Ítalíu sem getur leyft sér að borga honum," segir Giorgio Chiellini, stjórnandi hjá Juventus sem staðfesti fregnirnar í dag.

Serbinn er talinn hafa beðið um rúmlega 30% launahækkun til að vera áfram hjá Juve.

   03.06.2026 15:19
Vlahovic á förum frá Juventus


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner