FRÉTTIR22.07.2025, 14:52
Birnir Breki Burknason er genginn í raðir ÍA sem kaupir hann frá uppeldisfélaginu HK. Birnir Breki er skapandi leikmaður sem fæddur árið 2006. Hann gerir fjögurra og hálfs árs samning við ÍA, samningurinn gildi út 2029.
Hann er annar leikmaðurinn sem ÍA fær í glugganum því áður hafði Jonas Gemmer komið frá Danmörku.
Birnir Breki á að baki þrjá leiki fyrir U19 ára landsliðið, fór á reynslu til Hammarby í vetur og Víkingur sýndi honum áhuga. Hann hefur skorað fimm mörk í 44 leikjum í deild og bikar á ferlinum, þrjú þeirra komu í Bestu deildinni í fyrra og tvö í Lengjudeildinni á þessu tímabili.
ÍA, sem er á botni Bestu deildarinnar, spilar ekki leik á næstunni, næsti skráði leikur er gegn Val þriðjudaginn 5. ágúst.
FRÉTTIR22.07.2025, 13:30
Völsungur í Lengjudeildinni hefur fengið liðsstyrk fyrir lokasprettinn í deildinni því Sergio Parla Garcia er mættur til Húsavíkur.
Völsungur fór upp úr 2. deild síðasta sumar og sitja nýliðarnir í 8. sæti deildarinnar eftir 13 leiki, fjórum stigum fyrir ofan fallsæti og átta stigum frá umspilssæti þegar níu umferðir eru eftir.
FRÉTTIR22.07.2025, 13:21
Kristoffer Grauberg klárar ekki tímabilið með Vestra því hann hefur fengið félagaskipti til Svíþjóðar.
Hann er 24 ára hávaxinn framherji sem kom við sögu í ellefu leikjum í deild og bikar með Vestra fyrri hluta tímabilsins og skoraði eitt mark.
FRÉTTIR22.07.2025, 10:00
Mateo Retegui er genginn ti lliðs við sádi arabíska félagið Al-Qadsiah frá Atalanta. Al-Qadsiah borgar um 56 milljónir punda fyrir hann.
Hann skrifar undir fjögurra ára samning.
FRÉTTIR22.07.2025, 08:34
Leeds United hefur keypt þýska miðjumanninn Anton Stach frá Hoffenheim fyrir um 17 milljónir punda. Hann er 26 ára og á tvo landsleiki.
Stach, sem hefur skrifað undir fjögurra ára samning, er sjötti leikmaðurinn sem Leeds fær eftir að félagið vann Championship-deildina á síðasta tímabili.
Sebastiaan Bornauw, Jaka Bijol, Gabriel Gudmundsson, Lukas Nmecha og Sean Longstaff höfðu áður bæst í leikmannahóp Daniel Farke.
<i>„Ég er spenntur fyrir því að ganga í raðir svona öflugs liðs, svona góðs liðs í ensku úrvalsdeildinni. Ég myndi lýsa mér sem leikmanni sem spilar af ákefð, er góður í einvígum og með eiginleika sem henta vel í ensku deildina,</i> segir Stach.
FRÉTTIR22.07.2025, 07:30
Marko Arnautovic er genginn til liðs við Rauðu stjörnuna frá Serbíu eftir að samningur hans við Inter rann út í sumar.
Arnautovic er 36 ára gamall austurrískur framherji sem hefur komið víða við.
FRÉTTIR21.07.2025, 19:13
Bryan Mbeumo er genginn til liðs við Man Utd frá Brentford en United borgar 71 miilljón punda fyrir hann.
Félögin hafa verið í viðræðum undanfarnar vikur en komust loksins að samkomulagi fyrir helgi um kaupverð. United borgar 65 milljóir punda í fjórum greiðslum og 6 milljónir í aukagreiðslur.
FRÉTTIR21.07.2025, 14:59
Reynir Haraldsson er genginn í raðir ÍR en hann kemur frá Fjölni.
Vinstri bakvörðurinn er kominn heim í uppeldisfélagið, en hann hafði leikið allan sinn feril með ÍR þar til hann var keyptur til Fjölnis sumarið 2022.
Núna þremur árum seinna er hann mættur heim í Breiðholtið.
FRÉTTIR21.07.2025, 14:30
Húsvíkingurinn Jakob Gunnar Sigurðsson er genginn í raðir danska félagsins Lyngby á láni frá KR. Hann er farinn til Danmerkur og verður þar í vetur, lánssamningurinn gildir út júní á næsta ári.
Fyrri hluta Íslandsmótsins var hann á láni hjá Þrótti Reykjavík í Lengjudeildinni. Hann er 18 ára og skorai sjö mörk í 15 keppnisleikum með Þrótti, og þeir voru alls ekki allir sem byrjunarliðsmaður.
FRÉTTIR20.07.2025, 22:15
Ítalíumeistarar Napoli eru búnir að ganga frá kaupum á miðverðinum Sam Beukema sem kemur til félagsins úr röðum Cagliari.
FRÉTTIR20.07.2025, 21:41
Afturelding er búið að staðfesta félagaskipti Luc Kassi til félagsins á frjálsri sölu frá Degerfors í Svíþjóð.
FRÉTTIR20.07.2025, 17:20
Ítalíumeistarar Napoli eru búnir að tryggja sér framherjann Lorenzo Lucca á lánssamningi frá Udinese sem gildir út tímabilið.
FRÉTTIR20.07.2025, 17:00
Hallgerður Kristjánsdóttir spilar með Fylki út tímabilið en hún kemur á láni frá Gróttu.
FRÉTTIR20.07.2025, 12:00
Enski bakvörðurinn Kyle Walker-Peters hefur samið við enska úrvalsdeildarfélagið West Ham United til 2028 en hann kemur á frjálsri sölu frá Southampton.
FRÉTTIR20.07.2025, 09:30
Argentínumaðurinn Carlos Tevez hefur verið ráðinn sem aðalþjálfari hjá Talleres de Córdoba í heimalandinu.
FRÉTTIR20.07.2025, 08:30
Portúgalska stórveldið Benfica er búið að staðfesta komu Enzo Barrenechea til sín á lánssamningi frá Aston Villa sem gildir út keppnistímabilið.
FRÉTTIR19.07.2025, 19:26
Málfríður Anna Eiríksdóttir er komin aftur heim til Vals eftir að hafa reynt fyrir sér með B93 í efstu deild danska boltans.
FRÉTTIR19.07.2025, 17:20
Ítalska félagið Bologna er að styrkja sig með áhugaverðum leikmönnum fyrri part sumargluggans. Félagið tilkynnti á dögunum félagaskipti fyrir goðsögnina Ciro Immobile og nú er annar fyrrum landsliðsmaður Ítalíu mættur á svæðið.
FRÉTTIR19.07.2025, 12:17
Keflvíkingurinn Gabríel Aron Sævarsson er formlega genginn í raðir Breiðabliks frá Keflavík.
FRÉTTIR19.07.2025, 11:09
Aston Villa hefur gengið frá samningaviðræðum við LASK Linz um senegalska varnarmanninn Modou Kéba Cissé en hann mun formledga ganga í raðir félagsins á næsta ári.