Ítalíumeistarar Napoli eru búnir að tryggja sér framherjann Lorenzo Lucca á lánssamningi frá Udinese sem gildir út tímabilið.
Napoli greiðir 9 milljónir evra til að fá Lucca á láni og þarf svo að borga 26 milljónir í viðbót til að festa kaup á honum næsta sumar.
Þetta eru 35 milljónir í heildina en upphæðin gæti náð 40 milljónum evra með öllum aukagreiðslum.
Lucca, sem verður 25 ára í september, skoraði 14 mörk í 36 leikjum með Udinese á síðustu leiktíð.
Hann mun berjast við Romelu Lukaku um sæti í fremstu víglínu. Victor Osimhen og Giovanni Simeone eru á förum frá félaginu.
Lucca er fjórði leikmaðurinn sem Napoli fær til sín í sumar eftir Kevin De Bruyne, Noa Lang og Luca Marianucci. Þá styttist í að markvörðurinn Vanja Milinkovic-Savic verði einnig keyptur til félagsins úr röðum Torino.
Antonio Conte þjálfari vill ólmur styrkja leikmannahópinn sinn fyrir komandi átök næstu leiktíðar, þar sem Napoli hefur Ítalíumeistaratitil að verja.
Athugasemdir