FRÉTTIR08.05.2026, 11:13
KFG styrkti sig undir lok gluggans fyrir átökin í 2. deild í sumar. KFG er venslalið Stjörnunnar.
Við sögðum frá því í síðasta mánuði þegar Brynjar Gauti Guðjónsson gekk í raðir félagsins og fleiri þekktar stærðir skiptu til félagsins í kjölfarið.
FRÉTTIR07.05.2026, 18:25
Þýski stjórinn Fabian Hürzeler hefur framlengt samning sinn við enska úrvalsdeildarfélagið Brighton til 2029.
FRÉTTIR07.05.2026, 09:00
Aron Jóhannsson og Orri Sigurjónsson hafa gert félagaskipti yfir í Þrótt.
Orri var ráðinn styrktarþjálfari liðsins í janúar en hann spilaði 16 leiki með uppeldisfélaginu sínu Þór þegar liðið vann Lengjudeildina og tryggði sér sæti í Bestu deildinni síðasta sumar.
FRÉTTIR07.05.2026, 07:30
Félagaskiptaglugginn fyrir lið í Lengjudeildum karla og kvenna lokaði í gær. Völsungur styrkti sig á lokametrunum og fékk tvo markverði.
Jochum Magnússon er genginn til liðs við félagið frá Víkingi en hann er efnilegur markvörður.
Hann er fæddur árið 2007 en hann kom við sögu í einum leik í Reykjavíkurmótinu með Víkingi í vetur. Hann hefur spilað níu landsleiki fyrir yngri landslið Íslands.
FRÉTTIR07.05.2026, 06:00
Tómas Þórðarson hefur skrifað undir þriggja ára samning við Þrótt Vogum.
Tómas er sóknarmaður sem gekk til liðs við félagið frá Dalvík/Reyni. Hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir Þrótt þegar liðið vann dramatískan sigur á Haukum í 2. deild um síðustu helgi. Tómas kom inn á sem varamaður og skoraði sigurmarkið.
FRÉTTIR06.05.2026, 10:35
Magnús Ingi Þórðarson er genginn í raðir Þróttar frá Fram á láni út tímabilið.
Magnús hefur ekki verið í leikmannahópi Fram í síðustu leikjum og var fjallað um það fyrir rúmri viku síðan að hann vildi fara frá félaginu. Samningur hans við Fram rennur út eftir tímabil.
FRÉTTIR05.05.2026, 23:20
ÍH er búið að staðfesta ráðningu á Jóni Má Ferro sem þjálfara en hann lék 138 leiki fyrir liðið á fótboltaferlinum.
FRÉTTIR05.05.2026, 19:34
Kári Kristjánsson hefur verið seldur frá FH aftur í uppeldisfélag sitt, Þrótt. FH segir í tilkynningu hafa komist að samkomulagi við Þrótt um kaupverð í dag.
Kári, sem er 21 árs miðjumaður, gekk í raðir FH frá Þrótti fyrir þetta tímabil. Hann var ekki í sérlega stóru hlutverki í upphafi móts hjá FH en liðið hefur farið illa af stað á tímabilinu og er með eitt stig að loknum fimm umferðum í Bestu deildinni.
FRÉTTIR05.05.2026, 19:19
Nýkrýndir Portúgalsmeistarar FC Porto eru búnir að festa kaup á pólska miðverðinum Jakub Kiwior.
FRÉTTIR05.05.2026, 17:55
Ipswich Town tryggði sér annað sæti Championship deildarinnar á lokadegi deildartímabilsins og fara lærlingar Kieran McKenna því beint aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir að hafa fallið í fyrra.
FRÉTTIR05.05.2026, 12:22
Edin Terzic hefur verið ráðinn þjálfari Athletic Bilbao og tekur hann við baskneska félaginu í sumar eftir að Ernesto Valverde lætur af störfum sem þjálfari liðsins.
Terzic, sem er 43 ára gamall Þjóðverji, skrifaði undir tveggja ára samning við félagið.
FRÉTTIR04.05.2026, 19:36
Bandaríski leikmaðurinn Paul Leonard Skoczylas er genginn til liðs við Ægi.
FRÉTTIR03.05.2026, 13:53
Watford er búið að reka Edward Still úr þjálfarastólnum hjá sér eftir innan við þrjá mánuði í starfi.
FRÉTTIR01.05.2026, 12:30
Gabríel Snær Gunnarsson, leikmaður ÍA, var með fjóra rétta þegar hann spáði í leiki síðustu helgar í enska boltanum. Gleðigjafinn Óskar Borgþórsson ætlar að reyna að bæta það. Óskar er leikmaður Íslandsmeistara Víkings og er einn af öflugri leikmönnum Bestu deildarinnar.
Svona spáir hann leikjunum í 35. umferð ensku úrvalsdeildarinnar:
FRÉTTIR01.05.2026, 11:42
Miðjumaðurinn Tareq Shihab hefur gert eins árs samning við ÍR í Lengjudeildinni, en þetta kemur fram á vefsvæði félagsins á Facebook í dag.
FRÉTTIR01.05.2026, 09:00
Hvíti riddarinn er búinn að styrkja leikmannahópinn sinn fyrir komandi átök er liðið reynir fyrir sér í 2. deild eftir að hafa unnið 3. deildina í fyrra.
FRÉTTIR30.04.2026, 22:40
Kolviður Gísli Helgason er búinn að skipta um félag og mun leika með Reyni Sandgerði í sumar eftir að hafa verið hjá Breiðabliki og Augnabliki allan ferilinn hingað til.
FRÉTTIR30.04.2026, 22:20
Arnar Smári Arnarsson er kominn aftur heim í Kópavoginn eftir að hafa leikið sex leiki með Grindavík í Lengjudeildinni í fyrra.
FRÉTTIR30.04.2026, 18:40
Afturelding hefur verið að styrkja leikmannahópinn sinn fyrir komandi keppnistímabil og eru Mosfellingar búnir að næla sér í litháíska landsliðskonu.
FRÉTTIR30.04.2026, 17:30
Selfoss hefur samið við Benjamín Jónsson (2003) um að leika með liðinu í sumar.
Markvörður Selfyssinga, Arnór Elí Kjartansson (2005), meiddist á dögunum og verður frá keppni í einhvern tíma.
Benjamín lék með yngri flokkum Vals áður en hann fór yfir í Fram. Þar lék hann einn leik í Bestu deildinni sumarið 2023. Þaðan fór hann til Þróttar í Vogum áður en hann samdi við Þrótt Reykjavík fyrir síðasta tímabil.
Selfoss féll úr Lengjudeildinni í fyrra og ætlar sér upp úr 2. deild í sumar. Fyrsti leikur Selfyssinga í deildinni verður á JÁVERK-vellinum klukkan 14:00 á laugardag.