Fotbolti.net
01.09.26 - 21:25
Brynjar Ingi Erluson

Grealish aftur til Everton (Staðfest)

Grealish aftur til Everton (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Enski vængmaðurinn Jack Grealish er kominn aftur á láni til Everton frá Manchester City.
Grealish lék sem lánsmaður hjá Everton á síðustu leiktíð og stóð sig frábærlega áður en hann meiddist og þurfti að gangast undir aðgerð.

Hann sneri aftur til Manchester City í sumar og kom meðal annars við sögu í 2-1 sigri gegn Bournemouth. Enzo Maresca vildi sjá Grealish á undirbúningstímabilinu áður en hann tæki ákvörðun um framtíð hans en viðurkenndi á dögunum að Englendingurinn gæti yfirgefið félagið.

Aston Villa, uppeldisfélag Grealish, Sunderland og Everton vildu öll fá vængmanninn en hann ákvað að snúa aftur til Everton. Félagið hefur nú staðfest komu hans.

Hann kemur á láni út tímabilið en ekki kemur fram hvort kaupákvæði sé í samningnum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.